Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Blaðsíða 76
76 Veiðimaðurinn 77 Að gera tómstundagaman sitt að vinnu
Ein fyrsta netverslunin
Að sögn Ólafs er verslunarrekstur á
Íslandi almennt krefjandi því markað-
urinn er lítill. Hann segir að fyrstu árin
hjá þeim hjónum hafi verið erfið en með
mikilli vinnu hafi hjólin farið að snúast.
Þau hafi lagt áherslu á að lengja sölu-
tímabilið og flytja inn meira sjálf til að ná
betri verðum og það hafi skilað árangri.
Einnig hafi þau stofnað netverslun árið
1999 en Ólafur segir að þá hafi einungis
örfáar verslanir selt vörur á netinu.
„Við fundum amerískt sölukerfi á netinu.
Ég þýddi þetta og strákurinn minn, sem
þá var fimmtán ára, sá um tæknimálin,“
segir hann. „Veltan á netinu er samt bara
brot af heildarveltunni hjá okkur. Ég held
að það helgist af smæð markaðarins og
þeirri staðreynd að það er stutt fyrir við-
skiptavininn að fara út í búð. Á Íslandi
held ég að fólk skoði vörur á netinu, geri
samanburð á milli verslana, og fari síðan
smá rúnt til á milli þeirra til að berja þær
augum og prófa. Þetta er svolítið annar
veruleiki en blasir við víða úti í heimi.
Það tekur gott vinafólk okkar, sem býr í
San Fransisco, þrjá klukkutíma að keyra í
næstu veiðiverslun. Af þeim sökum kaupa
þau mest allan sinn búnað á netinu.“
Þegar kreppan skall á með hvelli
Hjónin ráku verslunina í Hafnarstræti til
ársins örlagaríka 2008.
„Ég hafði það á tilfinningunni í mars
2008 að bankapartíið væri að verða búið.
Ég man nákvæmlega hvar ég var þegar
ég fékk þessa tilfinningu. Ég var að lesa
Moggann um borð í flugvél á leiðinni
heim af byssusýningu. Þá sá ég að það
var mikið flökt á gengi krónunnar og
hugsaði með mér að nú væri eitthvað
verið að fikta og fegra ársfjórðungsupp-
gjörin. Það væri eitthvað að fara að gerast.
Auðvitað vonaði maður að það myndi
bara leka hægt úr blöðrunni frekar en
að hún myndi springa. Við vorum með
sex mánaða uppsagnarfrest á leiguhús-
næðinu og ákváðum að segja leigunni
upp um mánaðamótin mars - apríl og
sluppum því út rétt áður en kreppan skall
á með hvelli.”
Á þessum tíma voru þau hjón búin að
reka verslunina í Síðumúla frá árinu 2001.
Og um tíma voru þau líka með verslun í
Kringlunni í tvö og hálft ár. En eftir að
leigunni var sagt upp í Hafnarstrætinu
færðist þungamiðja rekstursins upp í
Síðumúla, þar sem hún hefur verið síðan.
Árið 2007 keypti Veiðihornið rekstur
Sportbúðarinnar við Krókháls. Í upphafi
var verslunin rekin að Krókhálsi 5.
„Við gerðum fimm ára húsaleigusamning,
sem var mjög óhagstæður undir lokin.
Við reyndum að semja um betri kjör en
eigendur húsnæðisins voru ekki til í það.
Á sama tíma var Harðviðarval, sem er
hinum megin við götuna við Krókháls 4,
að minnka við sig og við ákváðum að færa
okkur yfir og leigja verslunarrými þar.”
Verslunin við Krókháls var um tíma rekin
undir nafninu Veiðilagerinn.
„Markaðurinn gjörbreyttist eftir hrun.
Það hægðist á sölu á dýrari vöru en
sprenging varð í sölu á ódýrari vöru. Fólk
hafði meiri tíma. Það var ekki að fara
mikið til sólarlanda heldur eyddi fríinu
innanlands og þá var vinsælt að fara í
veiði. Það varð til fullt af nýjum veiði-
mönnum á þessum árum. Í Veiðilagernum
sveigðum við okkur í átt að þessum nýja
markaði og þar buðum við upp á ódýrar
veiðivörur. Þetta gekk mjög vel á sumrin
en var rólegt yfir vetrartímann.“
Á vormánuðum 2016 var farið í miklar
breytingar á húsnæðinu við Krókháls. Í
byrjun maí það ár opnaði ný og endurbætt
verslun undir merki nafni og merki Veiði-
mannsins. Veiðiverslunin Veiðimaðurinn
lifir því enn góðu lífi og fagnar á næsta
ári 80 ára afmæli sínu.
Albert Erlingsson, stofnandi Veiðimannsins, ásamt Paul O’Keefe, virða fyrir sér forláta Hardy-stöng þegar verslunin flutti
í húsnæði Ingólfsapóteks á horni Nausta og Hafnarstrætis við Hafnarstræti 5 árið 1987. Myndin birtist í Vikunni
í desember það ár.
Þessi auglýsing birtist í Morgunblaðinu
í janúar árið 1947.