Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Page 80

Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Page 80
„Við félagarnir höfum brennandi áhuga á veiði og langaði að koma með ferskar áherslur og ný sjónarhorn inni í fræðslu- kvöld félagsins,“ segir Hrafn Ágústs- son, ný formaður fræðslunefndar SVFR í spjalli við Veiðimanninn, en flestir stangveiðimenn þekkja Hrafn fyrir ódrepandi áhuga sinn á þurrfluguveiði og kannski ekki síst fyrir starf sitt í Laxárdal. Hrafn, ásamt Óla bróður sínum, hefur veitt í Laxárdalnum frá árinu 1983 og fáir þekkja svæðið betur en einmitt þeir. Þeir eru þekktir sem Caddis-bræður og hafa veiðimenn notið leiðsagnar þeirra í dalnum um árabil í þeirri perlu sem neðri hluti Laxár í Mývatnssveit vissulega er. Hrafn hefur verið ódrepandi í að kynna veiðimenn fyrir svæðinu og þurrflugu- veiði. Fjölmargir hafa notið þess að kasta í fyrsta sinn á þessu svæði undir vök- ulu auga hans. Því lá beinast við fyrir „kennarann“ að færa út kvíarnar og fræðslunefndin var tilvalinn vettvangur. Hrafn segir fræðslunefndir fyrri ára hafa byggt upp skemmtilegt starf innan félagsins. „Það verður áskorun fyrir okkur félagana í nýrri fræðslunefnd að feta í fótsporin og enn erfiðara að gera betur en við ætlum að taka þeirri áskorun að lyfta fræðslustarfinu enn hærra en fyrr,“ segir Hrafn. Það er ekki erfitt að sjá eldmóðinn í augum nýja formannsins, sem veit upp á hár hvaða verkefni bíða. „Sérstaklega langar okkur langar að stuðla að dýpri þekkingu veiðimanna á lífríki og veiðitækni. Nördast með veiðiáhugamálið út frá sem flestum sjón- arhornum og þannig auka upplifunina á þeim allt of fáu stundum sem við stígum dans við veiðigyðjuna.“ Ný fræðslunefnd er að skipuleggja fimm „mögnuð“ kvöld frá janúar til maí, þar sem nefndin fær marga meistara til opna nýjar leiðir, kenna nýjar aðferðir og segja frá leyniaðferðum og stöðum. Veita upplýsingar sem að sjálfsögðu fara ekki lengra. „Við ætlum að leggja meiri áherslu en áður á silungsveiðar og hjálpa ungu veiðifólki að stíga dýpra inn í áhugamálið með hjálp eldri og reyndari meistara. Við verðum til dæmis með veiðikennslu í vorsilungsveiðinni í Elliðaánum og síðan verður hinn klassíski barna- og ungmennadagur á laxatímanum næsta sumar,“ segir Hrafn og það er ljóst að spennandi tímar eru framundan. „Við vonum sannarlega að félagsmenn verði duglegir að sækja kvöldin á nýju ári fram til vors og taki með sér gesti. Það er stefnan að gamli samfélagsmiðillinn „Maður er manns gaman“ komi sterkur inn á fræðslukvöldunum,“ segir Hrafn. Ný fræðslunefnd SVFR „Viljum stuðla að dýpri þekkingu veiðimanna“ Ný fræðslunefnd SVFR hefur tekið til starfa og það er óhætt að segja að þar séu engir aukvisar á ferð sem eru í fyrsta sinn að kasta agni fyrir fiska. Formaðurinn segir spennandi tíma framundan. Eɷir Steingrím Sævarr Ólafsson Veiðimaðurinn 81
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.