Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Page 100

Veiðimaðurinn - 01.12.2019, Page 100
„Það voru mörg ný andlit í ferðinni síðasta sumar, sem var mjög gleðilegt. Stemmingin var ótrú- lega góð og sem dæmi þá var byrjað að dansa fyrir kvöldmat og eftir mat var haldið áfram.“ endurspegli meðal annars vel hversu tíma- bært það hafi verið stofna sérstaka deild fyrir konur innan Stangaveiðifélagsins. „Ég held að sífellt fleiri konur séu að fá áhuga á stangaveiði. Konur eru minna uppteknar af kampavíninu og hafa orðið meiri áhuga á veiðinni sjálfri,“ segir Anna og brosir. „Áhuginn er smitandi og oft er þetta þannig að kona í veiði fær vinkonu sína með sér og þannig koll af kolli. Þetta getur verið fljótt að gerast.“ Ótrúleg ferð í Langá Kvennadeildin stendur árlega fyrir kvenna- veiðiferð. Í lok síðasta sumar var farið í Langá á Mýrum og óhætt er að segja að sú ferð hafi verið eftirminnileg. Anna segir að útlitið hafi nú ekki verið sér- staklega gott fram eftir sumri. Viðvarandi hlýindi og vatnsleysi hafi sett sitt mark á ár á Vesturlandi. Guðirnir hafi aftur á móti verið með þeim liði og aðstæðurnar orðnar frábæra þegar þær hafi mætt um mánaða- mótin ágúst- september. Á endanum hafi ferðin verið fullkomin. Íslandsmet ef ekki heimsmet hafi verið sett í löndun Maríu- laxa en alls hafi átta konur veitt sinn fyrsta lax í ferðinni. Ekki nóg með það heldur hafi hollið landað 36 löxum í tveggja daga veiðiferð. Eftir því sem Veiðimaðurinn kemst næst landaði ekkert holl fleiri löxum síðasta sumar í Langá. „Það voru mörg ný andlit í ferðinni síð- asta sumar, sem var mjög gleðilegt,“ segir Anna. „Stemmingin var ótrúlega góð og sem dæmi þá var byrjað að dansa fyrir kvöldmat og eftir mat var haldið áfram. Það er alveg hrikalega gaman í þessum kvennaveiðiferðum - maður tímir varla sofa það er svo gaman. Í þessu ferðum þá erum við alltaf með vana gæda og það er ómetanlegt. Þeir eru ekki bara að leiða okkur á góða veiðistaði heldur eru þeir líka kennarar. Byrjendur fá því mjög mikið út úr þessum ferðum.“ Biðlisti fyrir næstu ferð Leikurinn verður endurtekin næsta sumars þegar Kvennadeildin fer með hóp í Langá 30. ágúst. „Það er gaman að segja frá því að það þegar orðið fullt í þessa ferð og kominn biðlisti. Það hefur aldrei gerst áður.“ Anna segir að konur vilji oft vera þrjár saman á stöng en venjan hér á landi er að tveir veiði saman á stöng. Spurð hvers vegna þetta sé svona svarar hún: „Þegar ein er úti í á að veiða þá er nauðsynlegt að sú sem bíði hafi félagsskap á bakkanum. Þetta er ekki vegna þess að það sé ódýrara að vera þrjár á stöng heldur einfaldlega vegna þess að við viljum góða stemmn- ingu.“ Anna, sem hefur gegn formennsku í Kvennadeildinni í nokkur ár, segist ætla að víkja úr formannssætinu í vor. „Ég tel mjög mikilvægt að endurnýja í stjórnum reglu- lega og þess vegna vil ég hleypa nýjum að.“ Það var stemming í Langárbyrgi síðasta sumar og byrjað að dansa fyrir kvöldmat. Anna Þórunn Reynis með lax sem hún landaði við Efra horn í Langá síðasta sumar. 100 Veiðimaðurinn 101 „Tímir varla að sofa það er svo gaman“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.