Harmonikublaðið - 15.09.2021, Síða 4
Harmonikudagur
á Þingeyri 2019
Það er ekki að því að spyrja þegar Dýrfirðingar
koma saman að lyfta sér upp úr hversdags-
leikanum með söng og hljóðfæraleik. Þá lifnar
yfir mannlífinu. Hefur svo verið lengi. Rifja
má upp að karlakór var stofnaður á Þingeyri
1906, einn sá fyrsti á landinu og hét Svanur.
Lúðraflokkur stofnaður þar 1910, Big band
þeirra tíma, var líka einn sá fyrsti á landinu
og hét Lúðrasveit Dýrafjarðar. Svona mætti
lengi telja.
Ókeypis stórtónleikar
A nýliðnum Harmonikudegi, 4. maí, sem
haldinn var hátíðlegur um land allt, komu
Harmonikukarlarnir og Lóa með dragspil sín
í félagsheimilið og héldu ókeypis stórtónleika
með ýmsum öðrum kröftum. Er þetta stærsta
harmonikuhljómsveit norðan Alpafjalla eins
og kunnugt er, eða þannig. Sannleikurinn er
sá að Harmonikukarlarnir í Dýrafirði, með
Guðmund Ingvarsson hljómsveitarstjóra (og
konsertmeistara) í broddi fylkingar, hafa nú
all mörg lög á tónleikaskrá sinni sem þeir geta
spilað kinnroðalaust hvar sem er og hvenær
sem er, enda margar æfingar að baki. Elínbjörg
Snorradóttir, húsfrú á Mýrum, Lóa, hefur svo
viss dempandi áhrif á karlana, með hógværri
framkomu sinni og elskulegheitum, að þeir
fari ekki fram úr sjálfum sér.
Harmonikukarlarnir voru 7 að þessu sinni.
Fyrir utan hljómsveitarstjórann voru það
Sigurður Friðrik framkvæmdastjóri og honum
verða menn að hlýða og ekkert múður. Þá
Þórður útvegsbóndi í Skjólvík, Hreinn
hreppstjóri á Auðkúlu, Ásvaldur fyrrum bóndi
á Ingjaldssandi og einhver frægasti ýtustjóri
hér vestra á sinni tíð, þúsundþjalasmiðurinn
Kristján frá Hofi og síðast en ekki síðast
Bergsveinn á Mýrum, maðurinn hennar Lóu.
Eru þetta ekki samtals 8 harmonikuleikarar?
Líni Hannes Sigurðsson lék á hljómborð og
er löngu orðinn fastur maður í bandinu. Þá
var hann Oliver danski gestaspilari og lék á
trommur með sveitinni.
Ekki voru margar feilnótur slegnar!
Harmonikudagurinn hófst að þessu sinni með
því að frúin á Mýrum, Edda Arnholtz, söngvari
hljómsveitarinnar, bauð gesti velkomna með
flottri ræðu. Síðan fóru menn að þenja dragspil
sín. Var þar allt undir kontról og ekki margar
feilnótur slegnar. Söng Edda hvert lagið af
öðru með stórbandinu, gamla slagara eins og
Seven lonely days, sem Doris Day gerði frægt
á sinni tíð og allt. Var góður samhljómur á
milli allra aðila, enda frúin fínasti söngvari.
Sannleikurinn er sá að það er mikið vandaverk
að stilla saman svona marga strengi svo vel
fari. Enda koma menn úr margs konar
eldhúsum frá fyrri tíð, en
spilað var á harmoniku á
öðrum hverjum bæ hér
um slóðir í gamla daga.
Óvænta atriði og önnur klassísk
Övænta atriðið var danska parið Oliver og
Mija. Þau eru bæði háskólagengin í tónlist.
Frábær sem slík. Komu hingað í haust og héldu
tónleika í Blábankanum. Fréttu þá af
fyrirbærinu Harmonikukörlunum og co.
Höfðu mikinn áhuga á að hitta það band.
Vildu svo endilega koma aftur og gerðu það.
Færðu þeim frumsamið tónverk og fluttu með
sveitinni á tónleikunum. Höfum við ekki vit
á öðru en það sé hið besta verk, skemmtilegt
og sérstætt. Svo spiluðu þau og sungu nokkur
lög. „Det var meget interessant“!
Að lokum komu svo snillingarnir frá Isafirði
upp á senu að vanda. Þeir eru aldeilis magnaðir
og eru ekkert farnir að slá af: Villi Valli,
Magnús Reynir, Baldur Geirmunds og Sammi
rakari. Og svo sonur hans Baldurs á
trommunum.
Ekki má gleyma að nefna hann Hauk
Sigurðsson, myndatökumanninn flotta. Hann
snýst eins og skopparakringla með myndavélina
þegar spennurnar eru teknar af nikkunum í
Dýrafirði. Hann er sjálfur flinkur á nikkuna
og er eiginlega orðinn meðlimur í hinu fræga
bandi. Svo var hann túlkur hjá þeim Oliver
og Miju.
Félagsheimilið var nokkuð þéttsetið. Einkum
var áberandi hvað margt aðkomumanna,
einkum Isfirðingar, var á staðnum. Kaffi og
með því fengu menn svo hjá Kvenfélaginu
Von og var ekki að spyrja að myndarskapnum
á þeim bæ. Dagurinn var öllum aðstandendum
til sóma.
Ellefu og hálfur!
Loks skal rifjað upp til gamans, að eitt sinn
fór þessi nafnkunna og stóra hljómsveit í
hljómleikaför til Bíldudals með varðskipi. Þá
voru Syngjandi páskar á dagskrá sem séra
Tómas gerði fræga, sá eftirminnilegi maður.
Segir ekki nánar af þeirri frægðarför, nema
hvað Bílddælingur nokkur spurði hvað margir
væru í hljómsveitinni. Ellefu og hálfur var
svarið og förum við ekki nánar út í það og
nefnum engin nöfn!
Hallgrímur Sveinsson
Myndir: Haukur Sigurðsson
Greinin birtist upphaflega í Bœjarins besta á
Isafirði 8. maí 2019 og birtist hér meðgóðfúslegu
leyfi Kristins H. Gunnarssonar ritstjóra Bœjarins
besta.
Flott danspör
Boðið var upp á dans. Þar
voru fyrst á gólfið, eins og
oft áður, Ingibjörg
Þorláksdóttir og Hólmgeir
Pálmason. Þau eru
frábærir dansarar. Varla að
maður þori að nefna að
þau minna bara á þegar
Fred Astaire var að sveifla
Ginger Rogers, sællar
minningar. Má líka vel
nefna, að skórnir
Hólmgeirs eru mjög
svipaðir dansskónum hans
Astaires. Þessum með
hvítu leggingunum, þið
munið! Svo voru
náttúrulega hjónin frá
Hnífsdal, Sigrún og
Halldór, Dóri og Rúna,
sem eru líka flottir
dansarar. Og fleiri sem
maður leggur ekki í að
nafngreina.
Harmonikukarlarnir og Lóa á sviðinu á Þingeyri
Asvaldur, Kristján frá Hofi og Siggi Frikki kasta mœðinni
4