Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Blaðsíða 2

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Blaðsíða 2
2 Framkvæmdafréttir nr. 724 2. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 724 2. tbl. 31. árg. 3 Arnarnesvegur (411-07) Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut Vegagerðin býður út þriðja áfanga Arnarnesvegar (411-07) milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Tilboð verða opnuð 18. apríl. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist sumarið 2023 og áætlað er að verkinu ljúki haustið 2026. Myndband af fyrirhugaðri framkvæmd má sjá í frétt á vegagerdin.is. Útboðið nefnist „Arnarnesvegur (411-07), Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut“. Í því felst nýbygging Arnarnesvegar á um 1,9 km kafla, auk þess sem byggð verða brúarmannvirki og undirgöng. Framkvæmdirnar felast í nýbyggingu Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut og einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi. Í verkinu eru tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi, stofnstígar og stígatengingar. Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar Veitna, Suðuræðar II. Einnig verður unnið við hljóðdeyfigarða og hljóðveggi, regnvatnslagnir, snjóbræðslulagnir, settjörn, regnbeð, götulýsingu og lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar. Auk vegar verða eftirfarandi mannvirki byggð: → Akstursbrú yfir Breiðholtsbraut með aðskildum göngu- og hjólastíg. → Göngu- og hjólabrú yfir Arnarnesveg sem tengir stofnstíga milli Reykjavíkur og Kópavogs. → Undirgöng undir Breiðholtsbraut við Suðurfell / Jaðarsel. → Undirgöng undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg. → Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar. → Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Vatnsendavegar. → Stofnstígur gangandi og hjólandi frá Rjúpnavegi yfir í Elliðaárdal. → Göngu- og hjólabrú á Dimmu. ↑ Samstarfssamningur vegna Arnarnesvegar – 3. áfanga var undirritaður 15. mars 2023. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og Mílu. Frá vinstri: Bryndís Friðriksdóttir, Vegagerðinni, Davíð Þorláksson, Betri samgöngum, Ólafur Þór Rafnsson, Veitum, Stefán L. Stefánsson, Kópavogi og Ingimar Ólafsson, Mílu.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.