Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Page 2
2 Framkvæmdafréttir nr. 724
2. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 724
2. tbl. 31. árg.
3
Arnarnesvegur (411-07)
Rjúpnavegur –
Breiðholtsbraut
Vegagerðin býður út þriðja áfanga Arnarnesvegar
(411-07) milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.
Tilboð verða opnuð 18. apríl. Vonir standa til
að framkvæmdir geti hafist sumarið 2023
og áætlað er að verkinu ljúki haustið 2026.
Myndband af fyrirhugaðri framkvæmd má sjá í
frétt á vegagerdin.is.
Útboðið nefnist „Arnarnesvegur (411-07), Rjúpnavegur
– Breiðholtsbraut“. Í því felst nýbygging Arnarnesvegar
á um 1,9 km kafla, auk þess sem byggð verða
brúarmannvirki og undirgöng.
Framkvæmdirnar felast í nýbyggingu
Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut
með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut
og einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun
Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi.
Í verkinu eru tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir
gangandi og hjólandi, stofnstígar og stígatengingar.
Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar
Veitna, Suðuræðar II. Einnig verður unnið við
hljóðdeyfigarða og hljóðveggi, regnvatnslagnir,
snjóbræðslulagnir, settjörn, regnbeð, götulýsingu og
lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar.
Auk vegar verða eftirfarandi mannvirki byggð:
→ Akstursbrú yfir Breiðholtsbraut með aðskildum
göngu- og hjólastíg.
→ Göngu- og hjólabrú yfir Arnarnesveg sem tengir
stofnstíga milli Reykjavíkur og Kópavogs.
→ Undirgöng undir Breiðholtsbraut við Suðurfell /
Jaðarsel.
→ Undirgöng undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg.
→ Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar.
→ Hringtorg á mótum Arnarnesvegar og
Vatnsendavegar.
→ Stofnstígur gangandi og hjólandi frá Rjúpnavegi yfir
í Elliðaárdal.
→ Göngu- og hjólabrú á Dimmu.
↑
Samstarfssamningur vegna
Arnarnesvegar – 3. áfanga var
undirritaður 15. mars 2023. Verkið er
samstarfsverkefni Vegagerðarinnar,
Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna,
Veitna og Mílu. Frá vinstri: Bryndís
Friðriksdóttir, Vegagerðinni, Davíð
Þorláksson, Betri samgöngum, Ólafur Þór
Rafnsson, Veitum, Stefán L. Stefánsson,
Kópavogi og Ingimar Ólafsson, Mílu.