Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Blaðsíða 3
2 Framkvæmdafréttir nr. 724
2. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 724
2. tbl. 31. árg.
3
Tilboð verða opnuð 18. apríl. Ef allt gengur að óskum
ætti verktaki að geta hafið framkvæmdir sumarið
2023. Stefnt er að því að verkinu verði að fullu lokið
haustið 2026.
Markmiðið með framkvæmdinni er að auka
umferðaröryggi vegfarenda og stytta ferðatíma, auk
þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg en í
Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15.000
manns. Þá mun vegkaflinn bæta viðbragðstíma fyrir
neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur til
muna.
Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar,
Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og
Mílu. Verkið er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum,
sem gerður var 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna
sex á höfuðborgarsvæðinu, þar sem markmiðið
er m.a. að stuðla að auknu umferðaröryggi,
hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á
höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða
allra samgöngumáta.
Verkfræðistofan Verkís hefur unnið myndband
fyrir Vegagerðina þar sem sjá má þrívíddarlíkan af
fyrirhuguðum framkvæmdum. Myndbandið er að finna
á vef Vegagerðarinnar, www.vegagerdin.is.
↓
Hér sést hvar fyrirhugaður
Arnarnesvegur, 3. áfangi, mun liggja.
↓
Séð til NA eftir nýjum Arnarnesvegi.
↓
Horft til SV eftir nýjum Arnarnesvegi.