Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Side 10

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Side 10
10 Framkvæmdafréttir nr. 724 2. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 724 2. tbl. 31. árg. 11 Reykjanesbraut (41) Krýsuvíkurvegur – Hvassahraun Vegagerðin býður út tvöföldun Reykjanesbrautar (41) milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns ásamt aðliggjandi hliðarvegum. Tilboð verða opnuð 5. apríl. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist í maí á þessu ári en áætlað er að verkinu ljúki árið 2026. Úboðið heitir; Reykjanesbraut (41-15), Krýsuvíkurvegur – Hvassahraun. Í því felst lagning Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla og inni í verkinu er einnig bygging brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta, Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna. Á Reykjanesbraut verða gerð mislæg gatnamót við Rauðamel en þar er að finna nýtt framtíðar byggingarsvæði Hafnarfjarðar. Mislæg gatnamót við Straumsvík verða stækkuð og bætt við tengingu að iðnaðarsvæði Hafnarfjarðar við Álhellu. Einnig verða gerðir eftirlitsstaðir við Reykjanesbraut og stofnstígur fyrir gangandi og hjólandi milli Hraunavíkur og Straums ásamt tengingu við Straumsvík. Inni í verkinu eru eftirtaldar vegaframkvæmdir: → Tvöföldun Reykjanesbrautar (st. 0 – 5.600). Tvær akreinar verða byggðar sunnan við núverandi Reykjanesbraut. Eftirlitsstaðir fyrir umferðareftirlit koma annars vegar sunnan við nýjan veg og hins vegar norðan við núverandi veg. → Aðreinar, fráreinar, rampar og hringtorg. → Vegtengingar frá Reykjanesbraut að Straumi. → Álhella (st. 110 – 642), Hraunavíkurvegur, Rauðimelur. → Vegtengingar frá Álhellu að Gerði og Kapellu. → Stofnstígur fyrir gangandi og hjólandi milli Hraunavíkur og Straums ásamt tengingu að Straumsvík. ↓ Breyta þarf mislægum gatnamótum við Straumsvík. Tölvuteiknaðar myndir: Mannvit

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.