Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Blaðsíða 19

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 31.03.2023, Blaðsíða 19
18 Framkvæmdafréttir nr. 724 2. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 724 2. tbl. 31. árg. 19 Annað atriði sem mátti sjá vísi að 1989 var viðbót við þjónustumerki. Á þessum árum var það vaxandi vandamál að þjónustuaðilar settu stjórnlaust upp auglýsingaspjöld við vegi og ekki öll falleg. Þetta var brot á ýmsum lögum og reglum, svo sem umferðarlögum og náttúruverndarlögum, en illa gekk að losna við þetta. Rekstrarstjórar Vegagerðarinnar áttu, í samráði við lögreglu, að taka niður svona skilti í sínu héraði en oftar en ekki voru það kunningjar þeirra, vinir eða ættingjar sem voru að auglýsa þjónustu sína. Skiljanlega gat það verið erfitt fyrir starfmenn Vegagerðarinnar að taka niður skilti veitingastaðar og mæta svo í hádegismat sama dag. Heimamönnum gekk því sumum illa að fást við þetta og þetta stríð var því háð að mestu frá Reykjavík. Jafnhliða því að skilti voru tekin niður voru teiknuð ný þjónustumerki fyrir allt sem mönnum gat dottið í hug að bjóða upp á. Þessi tákn eru nú orðin nokkuð á annað hundrað. Þannig gátu allir sem buðu upp á einhverskonar þjónustu sett upp merkingar sem stóðust reglugerð en staðsetning miðaðist við sérstakar reglur. Í nýrri reglugerð sem senn tekur gildi fækkar myndum þjónustumerkja umtalsvert frá því áður var en opnað fyrir það að veghaldari geti leyft önnur tákn. Nýtt þjónustutákn þarf því ekki að vera auglýst í reglugerð, það má setja það upp ef veghaldari telur það æskilegt og má gefa sér að öll tákn sem áður hafa sést í reglugerð séu leyfileg. Vegvísar á hálendinu voru lengi vandamál, sérstaklega vegna þess að öll venjuleg efni veðruðust hratt og illa. Þessi mynd er frá 1989 og sýnir að menn hafi þó reynt að bjarga sér. ← Mynd 7 Breytingar á vegvísum þegar danskur staðall var tekinn í notkun 1989. Hætt var að vera með kílómetratölur á spjöldunum því þessar tölur urðu úreltar við hverja styttingu vegalengdar og þá þurfti að endurnýja merkið. ↙ Mynd 8 Vegvísar á höfuðborgarsvæðinu. Notaðir eru aðrir litir en á öðrum stöðum á landinu. ↓ Mynd 9 Ein af ótal auglýsingum sem sjá mátti við þjóðvegi á 8. og 9. áratugunum. Alls ekki versta dæmið en nýtist hér því staðurinn kemur ekki fram á myndinni.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.