Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Page 4

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Page 4
4 Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. 5 Brúin yfir Laxá í Kjós var byggð árið 1933 og er því 90 ára gömul. „Ástand brúarinnar var orðið fremur slæmt en gott eftirlit var haft með henni. Í sumar þótti svo ljóst að setja þyrfti þungatakmarkanir á brúna sem er óheppilegt enda er nokkur þungaumferð um Hvalfjarðarveginn,“ segir Fjölnir Már Geirsson verkefnastjóri vinnuflokka Vegagerðarinnar. „Þar sem bregðast þurfti hratt við var ákveðið að fela brúavinnuflokknum í Vík það verkefni að gera við brúna og náðum við að stinga því inn á milli annarra verkefna,“ lýsir Fjölnir. Gert við brúna yfir Laxá í Kjós Hönnunardeild Vegagerðarinnar hannaði endurbyggingu brúarinnar en samhliða því gat brúavinnuflokkurinn hafið undirbúning. Við reyndum að forvinna brúna eins mikið og hægt var til að stytta framkvæmdatíma á verkstað,“ útskýrir Fjölnir en meðal þess sem hægt var að forvinna var smíði stálbita sem voru notaðir til að styrkja brúna. „Til þess fengum við níu 20 metra langa stálbita sem urðu afgangs við byggingu Landeyjahafnar og smíðuðum úr þeim fjóra 45 metra langa stálbita. Þetta gerðum við í ágúst í húsnæði Vegagerðarinnar í Garðabæ.“ Meðan hluti hópsins smíðaði stálbitana fóru hinir í að forsmíða flekaeiningar úr timbri sem notaðar voru í gólf brúarinnar. Brúavinnuflokkur Vegagerðarinnar vann að viðgerðum á brúnni yfir Laxá í Kjós í september. Þungatakmarkanir höfðu verið settar á þessa 90 ára gömlu brú í sumar og mikilvægt þótti að hefja viðgerðir sem fyrst. Með góðum undirbúningi og forvinnu þurfti aðeins að loka brúnni í tíu daga. ↑ Yfirbygging brúarinnar var rifin. ↗ Brúarviðgerð á síðustu metrunum, verið að festa gólfið og vegrið komin upp.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.