Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Blaðsíða 28
28 Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
29
Fyrst má nefna myndbönd um margvíslega
þjónustuþætti sem veita innsýn í starfsemi
stofnunarinnar svo og myndbönd um einstaka
framkvæmdir.
Næst má nefna upptökur úr Vegvarpi
Vegagerðarinnar sem eru þættir um ýmis áhugaverð
málefni. Þá er þar einnig að finna ýmsar upptökur af
morgunverðarfundum, málþingum og ráðstefnum.
Meðal myndbanda sem finna má á YouTube-rás
Vegagerðarinnar eru:
Uppbygging hjólastíga - Samgöngusáttmálinn
Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur hjá
Vegagerðinni, segir frá uppbyggingu hjólastíganets á
höfuðborgarsvæðinu.
Malarvegir
Myndband þar sem farið er yfir ýmis atriði sem varða
akstur og viðhald á malarvegum. Malarvegir eru 7.440
km en vegakerfið í heild sinni er 12.910 km.
Breikkun Hringvegar 1 á Kjalarnesi
Myndband um mikilvæga framkvæmd sem mun auka
umferðaröryggi til muna.
Áhugaverð myndbönd um
verkefni Vegagerðarinnar
Vegagerðin heldur úti YouTube-rás með
myndböndum sem endurspegla hið fjölbreytta
starf sem Vegagerðin sinnir.
Klæðingar - bundið slitlag á umferðarminni vegi
Myndbandið veitir innsýn í verklagið við lagningu
klæðingar.
Vegstikur vísa veginn
Viðtal við Grétar Einarsson, verkstjóra á þjónustustöð
Vegagerðarinnar á Selfossi, um viðgerðir á stikum í
apríl 2022.
Vetrarþjónusta á Hellisheiði
Myndbandið gefur góða innsýn í hversu erfiðar
aðstæður geta orðið á Hellisheiði þegar mikið snjóar.
Umferðarþjónusta Vegagerðarinnar 1777
Í myndbandinu er fjallað um umferðarþjónustu
Vegagerðarinnar sem veitir upplýsingar til vegfarenda
í gegnum símanúmerið 1777, tölvupóst, Facebook og
Twitter.