Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Blaðsíða 23
22 Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
23
Tilraun á erfiðum kafla á
Reykjanesbrautinni
Reykjanesbrautin, milli hringtorgs við Lækjargötu og
langleiðina að ljósum við Kaplakrika, hefur verið erfið
viðureignar undanfarin ár. Sérstaklega var akrein
meðfram Setbergi illa farin á um 600 metra kafla
síðastliðinn vetur.
„Vegurinn var tvöfaldaður fyrir um tuttugu árum.
Fyrir nokkrum árum fór að bera á aflögun í akreininni
og var farið í stakar viðgerðir sem héldu ekki nógu vel
og fóru fljótt að láta á sjá. Þetta var óvenjulegt og við
vorum ekki nægilega viss um hvað ylli. Því var ákveðið
að gera rannsóknir á veginum til að finna orsökina,“
segir Kristinn Lind Guðmundsson á umsjónardeild
Suðursvæðis Vegagerðarinnar.
Ákveðið var að gera bráðabirgðaviðgerð á
veginum meðan á rannsóknum stæði og var vegurinn
því malbikaður með þunnu lagi fyrir tveimur árum.
„Malbikið flettist hins vegar af á stórum hluta
síðastliðinn vetur sem var slæmt fyrir vegfarendur. En
þar sem erfitt er að fara í meiriháttar viðgerðir að vetri
til voru holur lagfærðar eins og kostur var.“
Fyrsta kenningin var að lagnir undir veginum
væru til vandræða en það reyndist ekki vera. Í maí
síðastliðnum var vegurinn mældur með falllóði og gerð
greining á honum með veggreini Vegagerðarinnar. „Þá
kom í ljós að burðarþolsgildi á akreininni voru ekki góð,
sérstaklega upp við hringtorgið. Grafnar voru þrjár
holur til að kanna uppbyggingu vegarins og reyndist
uppbyggingin ekki vera nægilega góð. Þannig væri
vegur ekki byggður í dag þar sem stífari kröfur eru
gerðar til efna í svo umferðarmiklum vegi.“
Kannaðar voru þær leiðir sem voru færar til
viðgerðar á veginum sem kölluðu ekki á allsherjar
enduruppbyggingu sem er bæði mjög dýr og mikil
röskun fyrir vegfarendur og íbúa. „Þá kom upp sú
hugmynd að prófa þennan malbiksdúk sem á að dreifa
álaginu á veginn. Við fengum fund með sérfræðingum
frá Þýskalandi þar sem dúkurinn er framleiddur og
fengum leiðbeiningar um virkni og útlagningu hans,“
segir Kristinn en það er nokkur kúnst að leggja dúkinn
rétt þar sem hann er 2,5 m á breidd.
„Malbikið var frekar þunnt á þessum vegi, mest
10 cm og minna í hjólförum. Við fræstum malbikið af
á báðum akreinum í norðurátt. Reyndum að fræsa
eins lítið og við gátum til að skilja eftir einhvern massa
í veginum. Á hægri akreininni upp við hljóðmönina
fylltum við síðan í misfellur með malbiki til að slétta úr
veginum. Næst var sett 70% bikþeyta á veginn til að
festa dúkinn á verr förnu akreinina og loks voru báðar
akreinarnar malbikaðar á sama tíma,“ lýsir Kristinn.
Strax að lokinni viðgerð var vegurinn mældur með
veggreini Vegagerðarinnar og áfram verður mælt til að
fylgjast með hjólfaramyndun og öðrum skemmdum.
„Þetta er engin hókus pókus aðgerð sem gerir
veginn sem nýjan. En það verður forvitnilegt að sjá
hvort ending slitlagsins lengist og áhugavert að bera
saman akreinarnar tvær þar sem önnur er með dúk og
hin ekki.“
↑ ↙ Reykjanesbrautin, milli hringtorgs við Lækjargötu
og langleiðina að ljósum við Kaplakrika, hefur verið
erfið viðureignar undanfarin ár.