Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Blaðsíða 7
6 Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
7
Vinnu við undirgöng og stígakerfi við Litluhlíð er lokið
og búið er að opna fyrir umferð gangandi og hjólandi
vegfarenda. Síðla sumars var unnið við hellufrágang
eftir stígnum, lagðar voru þökur og að auki voru plöntur
og tré gróðursett í brekkunni við stíginn. Katrín segir
að undirbúningur áframhaldandi göngu- og hjólaleiðar
eftir Skógarhlíð sé þegar hafinn.
Loks segir Katrín að framkvæmdir á Arnarneshæð
gangi samkvæmt ætlun. Þar er verið að byggja
undirgöng fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur,
sem mun bæði tengjast þeim stígum sem fyrir eru
á svæðinu og stígum sem fyrirhugað er að leggja á
þessum slóðum.
„Við hönnun á undirgöngum við Arnarneshæð
var lögð mikil áhersla á að útfæra göngin á aðlaðandi
máta og þar spilar breidd ganganna og lofthæð miklu
máli til að þau verði sem björtust,“ segir Katrín. „Til
stendur að koma Arnarnesveginum út á Arnarnes í
rétt horf fyrir veturinn og stefnt er að því að hægt verði
að opna fyrir umferð gangandi og hjólandi um göngin
í janúar. Lokafrágangur verður þá næsta vor,“ segir
Katrín.
Elliðaárdalur í Reykjavík
Í Elliðaárdalnum í Reykjavík er búið að leggja nýjan
tvístefnu hjólastíg frá Höfðabakka að Vatnsveitubrú.
„Þær framkvæmdir hófust seint á síðasta ári og hafa
gengið samkvæmt áætlun. Þessa dagana er unnið að
lokafrágangi við lýsingu við stíginn. Jafnframt er byrjað
að undirbúa áframhald á þessari leið sem mun að
endingu ná að Breiðholtsbraut,“ segir Katrín.
Ráðgert er að hefja framkvæmdir við nýja brú yfir
Dimmu með haustinu þannig að umræddur stígur mun
tengjast stígakerfi við nýjan Arnarnesveg um mislæga
lausn yfir Breiðholtsbraut. Kallað hefur verið eftir nýrri
brú yfir Dimmu, en sú brú sem fyrir er, er barn síns tíma
og var ekki byggð sem göngu- og hjólabrú heldur var
hún upphaflega hitaveitustokkur.
Þá eru framkvæmdir í gangi, ofan við
Sprengisand, austast á Bústaðavegi. „Þar er
verið að byggja undirgöng fyrir gangandi- og
hjólandi vegfarendur og samhliða því verða gerðar
stígatengingar við nærliggjandi stígakerfi,“ segir Katrín.
Nýr hjólastígur í Elliðaárdal.
Undirgöng við Litluhlíð.
Undirgöng á Arnarneshæð.