Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Qupperneq 6
6 Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
7
„Ég hef fengið jákvæð viðbrögð við þeim og kallað er
eftir hraðari uppbyggingu stígakerfisins, ef eitthvað er,“
segir Katrín.
Um er að ræða stofnnet göngu- og hjólastíga sem
heyra undir Samgöngusáttmálann og sveitarfélögin
sex á höfuðborgarsvæðinu halda utan um í samstarfi
við Vegagerðina. „Uppbygging stígakerfisins er liður
í því að auðvelda fólki að komast leiðar sinnar um
höfuðborgarsvæðið á hjóli, þar sem öryggi vegfarenda
er í fyrirrúmi,“ segir hún.
Nýr samgöngustígur í Mosfellsbæ
„Búið er að leggja nýjan aðskildan göngu- og hjólastíg
með tvístefnu í Mosfellsbæ. Stígurinn liggur frá
íþróttasvæðinu við Varmá í gegnum Ævintýragarðinn
og að nýja hverfinu í Leirvogstungu. Hann tengir vel
saman gamalgróin hverfi við nýja hverfið,“ segir Katrín.
Umræddur stígur, sem er 1,7 km að lengd
og 5 m á breidd, er mikil samgöngubót. Hluti af
framkvæmdunum fólst í því að byggja tvær nýjar brýr,
yfir Varmá og Köldukvísl.
„Framkvæmdir við stíginn hófust haustið 2020
en mest var um að vera í fyrrasumar. Í vor og sumar fór
fram lokafrágangur. Samgöngustígurinn var svo vígður
með pompi og prakt í lok ágúst,“ greinir Katrín frá.
Stígar á góðri siglingu
Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur hjá
Vegagerðinni, segir að framkvæmdir vegna
göngu- og hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu hafi
heilt yfir gengið vel í sumar.
Strandgata í Hafnarfirði
Í sumar hafa staðið yfir framkvæmdir við Strandgötu
í Hafnarfirði en þar er verið að leggja aðskilinn göngu-
og hjólastíg. „Hann mun tengjast inn á stígakerfi sem
liggur inn á Vellina til suðurs og upp í Áslandshverfi
til norðurs. Með nýja stígnum verður komin samfelld
göngu- og hjólaleið frá Völlunum og Áslandi niður í
miðbæ Hafnarfjarðar. Búast má við að stígurinn verði
tilbúinn með haustinu,“ segir Katrín.
Fífuhvammsvegur Kópavogi
Í Kópavogi er verið að leggja lokahönd á nýjan,
aðskilinn göngu- og hjólastíg með tvístefnu við
Fífuhvammsveg, milli Lindavegar og Suðursala. „Sá
stígur er eitt skref í því að gera aðskilda göngu- og
hjólastíga meðfram öllum Fífuhvammsvegi og á næstu
árum munu framkvæmdir við hann halda áfram,“ segir
Katrín.
Samgöngustígur í Mosfellsbæ.
Hjóla- og göngustígar við Strandgötu.
Aðskilinn stígur með tvístefnu við Fífuhvammsveg.