Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Síða 8
8 Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
9
„Þetta er mikil framför. Áður var maður með prentaðar
teikningar með sér þegar maður fór á verkstað og
ef maður var heppinn var búið að setja niður hæla í
miðlínu vegarins sem til stóð að byggja. Núna getum
við farið á staðinn, skoðað landslagið í gegnum
SiteVision tækið og séð hvernig vegurinn kemur til
með að liggja, í hvaða hæð miðað við landslagið og
fáum þannig betri tilfinningu fyrir umfangi vegarins,“
segir Guðmundur Ingi Guðmundsson tæknifræðingur
á hönnunardeild Vegagerðarinnar sem hefur unnið að
innleiðingu tækninnar hjá Vegagerðinni ásamt Ólafi
Thorlacius Árnasyni samstarfsfélaga sínum.
Nokkur framþróun hefur verið í tækniumhverfi
veghönnuða undanfarin ár. Til að mynda hefur
þrívíddartæknin verið notuð í áraraðir til að gefa
hönnuðum betri innsýn inn í hvernig vegir koma til með
að falla inn í landslag. „Við fáum til okkar landlíkan
sem unnið er upp úr loftmynd, sniðmælingum og fleiru.
Síðan er vegurinn hannaður inn í þetta líkan,“ útskýrir
Ólafur.
Guðmundur Ingi kynntist fyrst SiteVision
tækninni fyrir þremur árum þegar hún var enn í þróun
í Bandaríkjunum. Þetta er því fremur nýleg tækni sem
fáir hafa nýtt sér hér á landi enn sem komið er. „Tækið
er uppbyggt sem skjár með handfangi og útbúið
nákvæmum gps- og fjarlægðarskynjurum. Síðan hleður
maður þrívíddarmódeli inn í tækið sem varpar því inn í
raunverulegt landslag í rauntíma. Þetta er svokallaður
blandaður veruleiki. Þú getur gengið um og séð á
skjánum hvernig vegurinn fellur að landslaginu.“
Ólafur bendir á að ekkert þurfi að eiga við gögnin
áður en þau eru sett inn í tækið. „Þessi þrívíddarmódel
eru alltaf búin til en þarna erum við komin með tækni til
að nýta þau enn betur í undirbúningi framkvæmda.“
Hönnunardeild Vegagerðarinnar
notast við fjölbreytta tækni við hönnun
samgöngumannvirkja. Þrívíddarlíkön hafa lengi
verið útbúin til að sjá betur hvernig vegir og brýr
koma til með að líta út í raunheimum og nú hefur
deildin eignast Trimble SiteVision tækjabúnað
sem hægt er að nota á fyrirhuguðum verkstað til
að varpa þrívíddarlíkönunum inn í landslagið.
Þrívíddarhönnun varpað
inn í raunverulegt landslag
En hver er tilgangurinn?
„Gagnsemi tækisins er ýmis konar. Til dæmis
getur verið gott fyrir hönnuð að fara á fyrirhugaðan
verkstað og átta sig á umfangi þess sem hann er að
hanna. Þá getur hann jafnvel komið auga á eitthvað
sem betur mætti fara sem ekki kemur nægilega vel
fram á teikningum, til dæmis hvernig vegur fellur
almennt að umhverfinu, hvar ræsi eru best staðsett
og hvernig veghæð kemur út á tilteknum stöðum
með tilliti til afvötnunar, snjóhæðar og gróðurs svo
eitthvað sé nefnt. Sumt er ekki hægt að meta nema
fara á staðinn,“ lýsir Guðmundur. Ólafur samsinnir því
og bætir við; „Þessi tækni getur líka nýst mjög vel í
samskiptum við landeigendur sem þarf að semja við.
Það getur verið upplýsandi fyrir landeigendur að geta
séð nákvæmlega hvernig vegurinn muni fara um landið
þeirra og hvaða áhrif framkvæmdirnar muni hafa.“
↘ Hægt er að ganga um og sjá
á skjánum hvernig vegur mun
falla að landslaginu.