Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Page 12
12 Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 721
6. tbl. 30. árg.
13
Höfundur:
Dr. Ólafur Sveinn
Haraldsson
Forstöðumaður
rannsóknadeildar
Formaður
stýrinefndar NordFoU
2022-2023
Þátttökulöndin eru Finnland, Svíþjóð, Noregur,
Danmörk, Ísland og Færeyjar. Markmið NordFoU er að
vinna sameiginlega að ákveðnum rannsóknaverkefnum
og fjármagna þau sameiginlega úr sjóðum sínum.
Fyrirkomulagið NordFoU skapar samlegðaráhrif fyrir
allar stofnanir og aðstoðar við að:
→ Takast á við sameiginleg vandamál
→ Nýta takmarkaða fjármuni
→ Forðast endurtekningar á rannsóknum
→ Takast á við stærri rannsókna- og þróunarverkefni
→ Fá fleiri sjónarmið við skilgreiningu á
rannsóknaþörf
→ Miðla niðurstöðum til stærra svæðis
Vegagerðir á Norður-
löndum vinna saman að
rannsóknum og þróun
Vegagerðin tekur þátt í NordFoU
(Fællesnordisk forskningssamarbeide) sem er
samstarfsvettvangur vegagerða Norðurlanda í
rannsóknum.
Til að verkefni séu tekin upp undir hatti NordFoU þurfa
a.m.k. tvö af þátttökulöndunum að koma að þeim.
Ákvörðun um þátttöku er tekin af viðkomandi stofnun
í hverju landi fyrir sig. Verkefni geta ýmist verið unnin
innan eða utan stofnananna en tillögur að verkefnum
þurfa þó ávallt að koma formlega frá einhverri þeirra.
Niðurstöður verkefna eru aðgengilegar fyrir allar
þjóðirnar.