Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Page 21

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Page 21
20 Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. 21 Vegagerðin er með nokkur tilraunaverkefni í gangi þar sem slíkir dúkar eru notaðir, en í sumar var dúkur lagður undir nýtt malbik á Reykjanesbraut. Þar var vegurinn illa farinn og mikil umferð er á veginum. „Malbiksdúkar hafa verið notaðir um allan heim í nokkra áratugi en aðeins lítið verið nýttir hér á landi. Mér fannst því áhugavert að rannsaka hvernig þeir koma út í íslenskum aðstæðum,“ segir Þorbjörg Sævarsdóttir verkfræðingur á hönnunardeild Vegagerðarinnar sem fékk styrk frá rannsóknasjóði Vegagerðarinnar í fyrra til að rannsaka virkni malbiksdúka af gerðinni HaTelit. Virkni malbiksdúka könnuð við íslenskar aðstæður Malbiksdúkar hafa verið notaðir með góðum árangri víða um heim. Það eru trefjadúkar sem lagðir eru milli bundinna slitlaga. Þeir virka sem eins konar járnagrind milli laga og jafna þannig álag sem fer niður í burðarlögin og minnka hættu á að sprungur í burðarlögum/undirlagi komi upp á yfirborð. „Við lögðum dúkinn á tvo kafla á Biskupstungnavegi og einn kafla á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði sumarið 2021. Við vorum í samstarfi við innflytjanda dúksins Gný ehf. sem gaf okkur efnið í rannsóknina og Colas Ísland sem sá um malbikun,“ segir Þorbjörg. Upphafleg hugmynd rannsóknarinnar var að fræsa upp malbikaðan veg, leggja dúkinn á milli og malbika yfir. „Við tókum hins vegar þá ákvörðun að prófa að leggja dúkinn ofan á klæðingu til að sjá hvernig það kæmi út,“ segir Þorbjörg en fyrir valinu varð Biskupstungnabraut, tiltölulega nýendurbyggður vegur með klæðingu sem til stóð að malbika að hluta. „Við völdum tvo kafla á veginum og lögðum áherslu á að velja neðri akreinar þar sem sjá mátti talsverða sprungumyndun og hjólför.“ ↑ Vandaverk er að leggja dúkinn sem er 2,50 m á breidd.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.