Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Side 22

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Side 22
22 Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. 23 ← ↑ → ↓ ↖ ↗ ↘ ↙ Dúkurinn var svo lagður ofan á klæðinguna og festur með bikþeytu. Síðan var lagt eitt malbikslag yfir. „Þar sem malbik var lagt á Biskupstungnabrautina frá Hringvegi framyfir Sogið á sama tíma verður áhugavert að bera saman hvernig akreinabútar með dúknum munu endast borið saman við gagnstæða akrein og nærliggjandi akreinar,“ segir Þorbjörg. Síðasti (þriðji) kaflinn sem var lagður var á Reykjavíkurvegi fyrir framan höfuðstöðvar Colas á Íslandi en þar var efsta malbikslagið fræst ofan af, dúkurinn lagður í bikþeytu og malbikað yfir. Aftur var dúkurinn lagður á neðri akreinina sem var verr farin og sem verður fyrir meiri álagi þungaumferðar. „Sá vegur þarf til lengri tíma litið hugsanlega meiri uppbyggingu en það verður fróðlegt að sjá hvort dúkurinn hafi einhver áhrif á endingu slitlags á veginum.“ Veggreinir Vegagerðarinnar, mælibíll sem mælir yfirborð og uppbyggingu vega, gerði mælingar á vegköflunum í fyrra og aftur í vor. Mælingum verður haldið áfram næstu ár og að lokum tekin saman skýrsla um hvernig vegkaflarnir með dúknum stóðu sig samanborið við aðra. Því er enn of snemmt að draga ályktanir um gagnsemi dúksins. Rannsóknir í öðrum löndum hafa sýnt fram á gagnsemi malbiksdúka en Þorbjörg segir ekki hægt að draga þá ályktun að þeir muni nýtast jafn vel hér á landi. „Aðstæður hér eru allt aðrar, og því er um að gera að prófa og rannsaka virkni þeirra hér á landi, því ef dúkurinn gefur góða raun getur hann verið góð lausn við ýmsar aðstæður“. Ef niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á gagnsemi dúksins eru veghaldarar mögulega komnir með lausn til að spara yfirlagnir og dreifa álagi jafnar niður á burðarlög sem ekki hafa fullnægjandi styrk. Notkun dúksins getur þannig minnkað rask meðan á framkvæmdum stendur, stytt lokanir vega og lengt endingu yfirlagna. ↑ Malbikað yfir dúkinn á Biskupstungnabraut. ↗ Dúkurinn er trefjadúkur sem virkar sem eins konar járnagrind milli bundinna slitlaga.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.