Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Side 26

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.10.2022, Side 26
26 Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. Framkvæmdafréttir nr. 721 6. tbl. 30. árg. 27 Vega- og brúargerð við Núpsvötn Núverandi brú við Núpsvötn var byggð árið 1973. Hún er 420 m löng, einbreið með tveimur útskotum. Aðkoma að brúnni er slæm þar sem hún stendur hátt miðað við landið. Brúin var byggð miðað við öryggiskröfur þess tíma en þær kröfur hafa breyst mikið í gegnum árin, þannig þola vegrið brúarinnar ekki þá áraun sem ætlast er til í dag. Breyting varð á vatnsvegi Núpsvatna fyrir allmörgum árum þegar jökuláin Súla, sem rennur undan Skeiðarárjökli skipti um farveg og sameinaðist Gígjukvísl. Við þessar breytingar lækkaði rennsli Núpsvatna umtalsvert og því verður nýja brúin mun styttri en sú eldri. Verkið felst í byggingu nýrrar 138 m langrar tvíbreiðrar brúar en hún stendur ofan við núverandi brúarstæði. Einnig hefur verið byggður nýr vegur en hann og brúin eru í nýju vegstæði á 1,9 km löngum kafla. Einnig verður byggður nýr áningarstaður vestan við nýju brúna. Brúin er eftirspennt steinsteypt brú með steyptu gólfi í fimm höfum, alls 138 m löng. Brúin er með 9 m breiðri akbraut og með 0,5 m breiðum bríkum og því 10 m að heildarbreidd. Allir stöplar brúarinnar eru grundaður á staurum, sem brúavinnuflokkur Vegagerðarinnar sá um að reka niður. Stefnt að opnun fyrir áramót „Næsta skref í framkvæmdinni er að steypa brúardekkið. Hugsanlega verður hægt að klára það fyrir lok október,“ segir Höskuldur Tryggvason umsjónarmaður verksins hjá framkvæmdadeild Vegagerðarinnar þegar rætt er við hann í lok september. Hann segir samtímis unnið að vegtengingum báðum megin við brýrnar. „Stefnan er að ná að tengja nýju vegtengingarnar við brýrnar fljótlega eftir að búið er að steypa svo mögulega verður hægt að opna fyrir umferð fyrir áramót.“ Framkvæmdir hafa gengið ágætlega. Aðstæður eru afar mismunandi milli framkvæmdasvæðanna tveggja. „Brúin yfir Hverfisfljót er byggð yfir vatnsfarveginum og áin fellur undir henni í þröngum stokki. Þetta geta verið krefjandi aðstæður. Við Núpsvötn var ánni hins vegar veitt í annan farveg og brúin byggð á þurru landi. Það er þægilegra en hins vegar hefur verktakinn lent í því nokkrum sinnum að flætt hefur inn á framkvæmdasvæði í flóðum og tafið þannig verkið,“ lýsir Höskuldur. Upphaflega stóð til að brúin yfir Hverfisfljót yrði tilbúin í júlí og brúin yfir Núpsvötn í nóvember. Höskuldur segir nokkrar skýringar vera á töfum. „Heimsástandið vegna covid og stríðsins í Úkraínu hefur haft töluverð áhrif. Bæði hefur gengið hægar að fá afhent stál og erfiðara gengið að fá fólk til starfa erlendis frá vegna ferðatakmarkana. Þá spilaði veturinn ekki með okkur og vinna lá niðri um tveggja mánaða skeið vegna veðurs.“ ↑ Nýja brúin yfir Núpsvötn verður 138 m löng en sú eldri er 420 m löng. → Nýja brúin yfir Núpsvötn er byggð á þurru landi en ánni er veitt í annan farveg meðan á framkvæmdum stendur.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.