Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Blaðsíða 8
Að ofan: „Standhope"rúm eftir Michael Graves, Memphis 1982.
Stóll á næstu síðu: „BEL AIR" eftir
Peter Shire, Memphis 1982.
Sögulegar rætur Memphis
stílsins eru margar og hönnuðirnir
gera það með ásettum vilja að tefla
andstæðum gegn hverri annarri,
t.d. fornum formum og nýjum
smíðaefnum. Þessi tvíhyggjustefna
birtist í sjálfu nafni línunnar.
Memphis var nafnið á hinni fornu
höfuðborg Egyptalands og
Memphis heitir einnig heimaborg
rokkkóngsins Elvis Presley. Fláar,
þríhyrningar og pýramídar minna
iðulega á Egyptaland og Ijós,
speglar og álímt plast minnir á
ameríska poppmenningu.
Áhrifin í þessum nýja
hönnunarstíl koma þó víðar að,
svo sem frá Art Nouveau,
Jugendstíl, Vínarverkstæðinu,
hinum spánska Gaudi og svo
Bauhaus og DeStijl. Stóllinn hérna
til hægri er frá DeStijl og er hann
hannaður af Gerrit Rietveld árið
1917. Hér má greina vissan
skyldleika, þó þessi stóll byggist á
strúktur hugmynd, en formin og
litirnir í Memphis húsgögnunum
eru aftur á móti komnir frá
Ijóðrænni ogdulrænni rót. í þessu
má t.d. finna skyldleika við
myndskáldið, myndhöggvaran,
Einar Jónsson.
8