Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Blaðsíða 28
Heimiliskúltur
Mörgum nútímamönnum, sem
gjarnan finnst þeir vel
þjóðfélagslega meðvitaðir, hættir
til þess að líta með óvirðingu, eða
a.m.k. ólund, til þess skipulags og
lífshátta sem háborgaralegt
samfélag embættis- og kaupmanna
bjó sér fyrr.á tímum.
Sjálfstæðisbaráttumenn höfðu
skömm á því sem þeir kölluðu
dansklundaða yfirstétt og voru
jafnvel á móti öllu sem þaðan
kom. Konur á „dönskum kjól" hétu
þær sem ekki klæddust íslenskum
búningi „danskir skór", sem ekki
voru úr sauðskinni. Mörgum fannst
það prjál.
Inn á þessi heimili komu fyrst
menningarstraumarnir frá Evrópu -í
gegn um Danmörku- og var hlutur
kvenna mjög áberandi í að veita
þeim viðtöku. í ævifrásögnum, t.d.
tónlistarmanna og annarra frá
þessum tímum, er þess oft getið að
fyrstu kynni þeirra af list, væri
einmitt undir handarjaðri kvenna,
sem forframast höfðu í „kvenlegum
fræðum".
Heldri manna dætur úr sveit
réðust í vist hjá maddömum og
fínum frúm á betri heimilum í
höfuðstaðnum. -Trúi ég að margur
sauðabóndinn hafi tuldrað í
skeggið, yfir tildrinu og fordildinni
úr henni Reykjavík.
Það er stundum eins og við
viljum lítið við þessa aðfluttu
„dönsku" menningu kannast.
Mörkin skulu sett við
sauðskinnsskóna og rokkinn.
Þegar þessar Ijósmyndir eru
skoðaðar, kemur fram í hugann
andblær horfins tíma. BorðsiIfrið
og postulínið er vandlega geymt í
traustvekjandi „buffet" og þarna
stendur forte píanóið, sem
heimasætan spilar þýsku sönglögin
á, við kvæði rómantísku
skáldanna.
28