Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Blaðsíða 78
Öflugur vegglampi á stillanlegum
armi. Cefur mikla möguleika til
óbeinnar lýsingar.
0 18 cm/33 cm 1 x 300W,
halogen
design: raul barbieri en giorgio
marianelli
Lýsing á heimilum.
Helstu breytingar sem orðið hafa
á heimilum eru að nú er krafist
meiri og fjölhæfari lýsingar en
áður. Nú eru innfelld, stillanleg
Ijós af ýmsum gerðum notuð til
lýsingar á t.d. málverk, veggteppi
og aðrar innréttingar. Þessir
lampar eru oftast tengdir inná
Ijósdeyfi, þannig að hægt er að
stjórna birtumagni eftir þörfum
hverju sinni.
Notkun vegg-, borð- og
standlampa hefur einnig fylgt
þessari þróun. í þessum lömpum
hafa hinar nýju perugerðir nýtst vel
til að skapa þau birtuáhrif sem
óskað er eftir. Óbein lýsing frá
vegg- eða standlampa, með öflugri
halogenperu sem varpað er á Ijóst
loft með miklu endurkasti, er
dempruð og laus við
skuggamyndanir. í nokkuð stórri
stofu ætti eitt öflugt Ijós með
halogen peru og birtustilli að
nægja til að skapa góða
grunnlýsingu í allri stofunni.
Margir þessara lampa eru í raun
sérstök listaverk, þ.e. lampi
nútímans er ekki einungis notaður
sem Ijósgjafi heldur er hann einn
af skrautmunum heimilisins.
Meiri áhersla er nú lögð á
aðkomu og útlit einkaheimila en
áður. Notkun útilýsingar við
heimili og í görðum hefur þróast á
sama hátt og áður hefur verið
minnst á. Hér er sérstaklega átt við
lýsingu í þakskyggnum, við
heimkeyrslur og innganga. Oftast
er notaður lampabúnaður sem
hannaður er fyrir hina nýju
kynslóð sparnaðarpera.
Fíngerður vegglampi gerður fyrir smáa, en birtumikla peru. Lampi sem auk
notagildisins er gott dæmi um listræna hönnun. 0 18 cm, h 46 cm, max 75W, 12V
halogen design: paolo pepere
78