Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Blaðsíða 77
í nútímaþjóðfélagi eru gerðar miklar
kröfur á öllum sviðum, þar á meðal til
lýsingar, hvort heldur er á heimilum, í
verslunum eða á öðrum stöðum. Til að
uppfylla þessar kröfur hafa hönnuðir og
framleiðendur lampabúnaðar lagt allt
kapp á að mæta þessum auknu kröfum
með ýmsum nýjungum, s.s. fíngerðari
lampabúnaði sem gefur fleiri valkosti en
áður þekktist. Ljósgjafarnir sjálfir, þ.e.
perurnar hafa tekið miklum framförum
og er nú ekki lengur talað um venjulegar
glóperur í öll Ijós eins og áður tíðkaðist. í
dag er t.d. talað um halogen perur,
háþrýstar natríum perur og flúrosent
perur. Sammerkt með öllum þessum
nýju perugerðum er hversu hátt
nýtingarhIutfalI þær hafa, þ.e. hversu vel
þær nýta orkuna miðað við það Ijósmagn
sem þær gefa. Þessar nýjungar hafa gefið
arkitektum og hönnuðum lampabúnaðar
ný og áður óþekkt tækifæri til að gefa
ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Stöðugt koma á markað lampar með
öðru formi og öðrum eiginleikum en
áður þekktist. Allar þessar nýju
lampagerðir krefjast meiri faglegrar
þekkingar við val og staðsetningu á
lampabúnaði. Lýsingarhönnun krefst því
orðið meiri sérþekkingar og víða í
háskólum erlendis er þetta kennt sem
sérstakt fag.
Hér gefur að líta dæmi um nýtískulega hannaðan
standlampa með öðru formi en algengt hefur verið,
ætlaður til lýsingar á loft.0 18, h 175 cm, 250W, 80
mm, halogen design: scuratti en tagliaferro
77