Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Page 69

Hönnun: húsgögn og innréttingar - 01.09.1987, Page 69
Séð inn ísnyrtiherbergi frá SANSYSTEM. TILBÚIN BAÐ- OG SNYRTIHERBERGI BEINT INN í BYGGINGUNA. Til þess að fullbúa þær vistarverur sem eru tæknilega margbrotnastar í byggingum, þarf oft marga mismunandi iðnaðarmenn. í baðherbergi af hefðbundinni gerð þarf t.d. múrara, pípulagningamenn, trésmið, flísalagninga mann, rafvirkja og málara. Fagmenn hafa lengi reynt að leysa málið á einfaldari hátt og hér er nú komið á markaðinn tilbúin verksmiðjuframleidd snyrtiherbergi, sem eru mjög einföld í uppsetningu. Áætlað er að setja slík snyrtiherbergi í eitt af þeim hótelum, sem nú eru í byggingu hérlendis. Snyrtiherbergi þessi af SANSYSTEM gerð eru til af ýmsum gerðum og stærðum. Sjálfir klefarnir eru byggðir eins og samloka, sem gefur stöðuga og berandi byggingu. Utanum sjálfan klefann er klæðning úr gipsplötum á málmgrind, eða þá úr spónaplötum. Til innréttinga er notaður venjulegur baðherbergisbúnaður úr postulíni og stálhúðuð blöndunartæki en baðker og sturtubotn eru úr plastefnum. Fyrirtækið BÚFÖNG flytur þessa nýjung inn, en K.Auðunsson annast söluria. PLÖTUR ÚR LITUÐU, LAGSKIPTU PLASTEFNI. Plötur úr krossviði og pressuðum trjátrefjum hafa lengi verið vinsælar fyrir húsgagna og innréttingagerð vegna þess hve auðvelt er að vinna með þær. Fyrirtækið Perstorp hefur nú komið fram með skemmtilega nýjung í gerð slíkra platna. Þessar plötur eru byggðar upp af mörgum lögum af léttu plasti en ytra borð plötunnar er allajafnan úr harðara, slit- og höggþolnara plastefni. Rendurnar á kanti platnanna geta því orðið mjög litríkar og á þetta má auka með að „fræsa" boga, beygjur eða fláa í plötukantinn. -Umboðsmaður á íslandi fyrir þetta nýja efni er Ofnasmiðjan Fláteigsvegi 7. ÞJÓNUSTA FYRIRTÆKJA VIÐ NEYTENDUR. Margar þær vörutegundir sem við þurfum að kaupa -s.s. sjónvörp, innréttingar, gólfteppi- eru það flókin „tæknilega" og til á markaðinum í það mikilli fjölbreytni, að erfitt er fyrir okkur að velja vöruna af skynsemi því upplýsingarnar vantar. Upplýsingar um verðsamanburð og helstu einkenni frá Neytendasamtökunum eru til nokkurrar hjálpar. En oft vantar meiri og fjölbreyttari upplýsingar. Hér hefur fyrirtækið Teppaland — Dúkaland komið með skemmtilega nýjung, 28 síðna handbók um hinar ólíku gerðir teppa, endingu og hráefni sem teppi eru búin til úr og um lagningu og viðhald teppa. Þetta er skemmtilegt dæmi um mátt réttra upplýsinga, notendur ná aukinni hagkvæmni með bættu vali og fyrirtækinu sparast fjármunir við kynningu í versluninni, því kaupendurnir vita meira um þá vöru sem þeir ætla að kaupa -Handbók fæst ókeypis með því að hafa samband við fyrirtækið.

x

Hönnun: húsgögn og innréttingar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hönnun: húsgögn og innréttingar
https://timarit.is/publication/1814

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.