Sjómannadagsblaðið - 2023, Qupperneq 6
6 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3
S iguróli ólst upp á Húsavík
en flutti til Reykjavíkur árið
1998 til þess að hefja nám
við Vélskóla Íslands. Hann hafði
aldrei farið á sjó þegar hann tók
ákvörðunina. Fyrsta túrinn fór
hann árið 2000 á uppveiðiskip-
inu Antares í Vestmannaeyjum og
líkaði vel.
„Það átti strax vel við mig, ég
varð ekkert sjóveikur og hef aldrei
orðið sjóveikur síðan. Vinnan
var skemmtileg, áhöfnin góð og
þetta var mikið ævintýri.“ Hann
segir nótaveiðar sérstaklega
spennandi veiðiskap. „Þegar þú
kastar nótinni getur hún verið tóm
eða það geta verið þúsund tonn og
skipið er fullt í einu kasti.“
Þrátt fyrir reynsluleysið á fyrsta
túrnum segist Siguróli aldrei
hafa upplifað neina hræðslu en
að þetta hafi verið ólíkt öllu sem
hann hafi gert áður. „Það var svo-
lítið óvenjulegt að vera kominn út
á sjó og vera hættur að sjá til lands.
Þá velti ég því fyrir mér hvað ég
væri kominn út í, en það þýðir
ekkert að hætta við. En ég var með
góða karla þarna sem kenndu mér
allt og mér var vel tekið. Það var
mikið spilað á spil, það var auðvit-
að ekkert internet þarna. Svo eru
Eyjamenn einstakir með það, þeir
eru byrjaðir að skipuleggja Þjóð-
hátíð í júní þannig að það voru
bara Þjóðhátíðarlög spiluð allt
sumarið,“ segir hann og hlær.
Skortur á vélstjórum
fyrirsjáanlegur
Þegar náminu lauk árið 2002 fór
Siguróli aftur heim til Húsavíkur á
frystitogarann Geira Pétursson á
rækjuveiðar. Á þeim tíma var lítið
að veiðast af rækju og tími rækju-
veiða að líða undir lok á Íslandi.
„Ég horfði svolítið á þetta sem
tækifæri til þess safna tímum
til að fá réttindi á stærri skip og
stærri vélar. Þá voru kannski
þrír vélstjórar um borð og maður
byrjaði sem annar vélstjóri. Nú er
þetta þannig að það er eiginlega
hvergi annar vélstjóri, nema á
frystitogurum. Það eru alls stað-
ar bara tveir vélstjórar og miklu
erfiðara að komast að í dag, þetta
er vandamál sem á eftir að verða
mjög stórt eftir svona fimm ár. Þeir
komast hvergi að. Geta hvergi
byrjað að safna sér tímum og ná
réttindum.“
Eitthvað við það að vera úti á sjó
Eftir dvölina á Húsavík fór Siguróli
til Fisk á gamlan ísfisktogara og
Siguróli Sigurðsson er yfir-
vélstjóri á togaranum Akur-
ey AK-10 og hefur verið
meira og minna á sjó síð-
an hann fór fyrsta túrinn
sinn fyrir 23 árum. Hann
hefur sankað að sér víð-
tækri reynslu og starfað á
mörgum tegundum skipa.
Hann segir það besta við
sjómennsku vera fríin en
að sjávarloftið sé engu líkt.
Hann segir hvalveiðar
ólíkar hefðbundnum
veiðum og lýsir háskaför
frá Tyrklandi til Íslands á
skipi sem enginn kunni á.
þaðan á frystitogarann Sléttbak.
Árið 2005 tók hann sér hlé frá sjó-
mannsstörfum og fór í smiðju hjá
Héðni til þess að taka sveinspróf
í vélvirkjun, sem er nauðsynlegt
til þess að öðlast full réttindi. Við
tók starf í landi hjá Jarðborunum
og endaði hléið frá sjónum á að
vera sjö ár.
„Ég saknaði þess pínu að vera á
sjónum, ég held að allir sjómenn
sakni þess. Það er eitthvað við það
að vera úti á sjó, anda að sér sjávar-
loftinu, og mórallinn er einstakur.
Mér lá samt ekkert á að komast aft-
ur á sjó, ég var búinn að kynnast
konu og var með lítil börn.“
Skip sem enginn kunni á
Fyrsta túrinn eftir sjö ára hlé fór
Siguróli sem yfirvélstjóri á Fjölni,
línuskipi sem gerði út frá Grinda-
vík. Eftir það tók við stutt stopp
á uppsjávarveiðiskipinu Júpíter
og fljótlega fékk hann fast pláss
á Sturlaugi H. Böðvarssyni frá
Akranesi, þar sem hann starfaði til
ársins 2017. Þá bauðst honum að
taka við nýju skipi, Akurey AK-10.
Hann dvaldi í Tyrklandi í fáeina
mánuði til að fylgjast með smíðun-
um og sigldi skipinu að lokum
heim. Til að æfa sig á skipið tók
hann þátt í að sigla Engey, sem var
sams konar skip, heim til Íslands.
„Það tók um hálfan mánuð að
sigla þessu á leiðarenda og læra
á skipið í leiðinni. Maður fær í
hendurnar eitthvað sem maður
kann ekkert á og þarf bara að læra
jafnóðum. Við rétt svo kunnum
að setja í gang þegar við lögðum
af stað. Við þurftum að vera á
hnjánum með teikningar og vasa-
ljós að rekja allar lagnir til þess
að geta lært á kerfin,” rifjar hann
upp og segir áhöfnina hafa komist
nokkurn veginn klakklaust heim.
Þó hafi komið upp töluverð hætta
þegar þeir sigldu frá slippnum til
að taka olíu fyrir heimför í aftaka-
veðri.
„Við biðum á áfangastað og lét-
um akkeri falla til þess að reyna
að vera kyrrir. Þetta var í janúar,
veðrið brjálað og svartamyrkur.
Fjöldi skipa var í kring, sum þeirra
ljóslaus og búin að liggja þarna í
mörg ár. Þetta var eins og að fara
inn í völundarhús. Við höfðum
áhyggjur af því að við myndum
fjúka á önnur skip eða þau á
okkur. Stanslaus neyðarköll bárust
Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn
Það var svolítið óvenjulegt
að vera kominn út á sjó
og vera hættur að sjá til
lands. Þá velti ég því fyrir
mér hvað ég væri kominn
út í, en það þýðir ekkert að
hætta við.
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Ísland
www.rafstjorn.is
Virkni loftræstikerfa
er okkar fag!
Nótaveiðar í miklu uppáhaldi
Siguróli Sigurðsson vélstjóri hefur komið víða við á rúmlega tveimur áratugum á sjónum. Hann kann að meta sjávar-
loftið, en gantast með að það besta við sjómennskuna séu fríin. Mynd/Hreinn Magnússon