Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 2023, Page 12

Sjómannadagsblaðið - 2023, Page 12
12 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3 Egill Þórðarson loftskeytamaður gluggar í japanska skýrslu sem tekin var saman fyrir samtök þarlendra útgerða. Kjartan Jóhannsson í Asíufélaginu hafði um árabil flutt inn þorskanet frá Taitou Seimo í Japan. Þetta voru nælonnetin sem umbyltu þorskveiðum vertíðarflotans er þau komu í stað brúnu bómullarnetanna. Efalaust muna margir á mínum aldri eftir þessari byltingu, vasahnífum og stundum armbandsúrum sem voru í netaböllunum. Við guttarnir vorum alltaf á höttun- um eftir japönsku vasahnífunum. Í október 1971 kom fulltrúi Taitou Seimo á skrifstofu Hisao Hoshino, deildarstjóra skipasmíða hjá Niigata Tekko, með tveimur Íslendingum, þeim Vilhelm Þorsteinssyni og Jóni B. Hafsteinssyni. Hoshino var tjáð að Íslendingar ætluðu að láta byggja tugi skuttogara og þeir væru að skoða jap- anskarskipasmíðastöðv- ar og tækjabúnað í þessu augnamiði, því álitlegt væri talið að byggja skipin í Japan. Hoshino átti satt að segja erfitt með að trúa þessu. Jap- anir höfðu ekki tekist á við svona stórt verkefni í smíði fiskiskipa áður og þetta yrði í fyrsta skipti sem þeir hefðu tækifæri til að byggja fyrir Evrópumarkað. Því var hóað saman fleiri fyrir- tækjum og fundur haldinn í Tókýó, þar sem gert var uppkast að teikningu togara, tækjalista og áætluðu verði, sem Íslendingunum þótti hátt. Þeir fóru þó með þessi gögn heim til Íslands, þar sem tillögunni var hafnað. Japanarnir höfðu svo pata af því að Íslendingar væru einnig að leita hófanna í Noregi, á Spáni og í Frakklandi. Þeim var mikið í mun að missa ekki af þessu tækifæri, sem gæti fært þeim dýrmæta reynslu og hreyft við stöðnun sem ríkti í út- gerðinni. Þessir Japanir gerðu sér fljótlega grein fyrir því að nauðsynlegt væri að leggja til hliðar eigin hugmyndir um skut- togara, sem byggðar voru á „349 tonna Norður-Kyrrahafstog- urunum“, „Hokuten 349 tonn“. Að auki þyrfti að hanna skipin eftir flokkunarkröfum Lloyds, en ekki japanska flokkunarfé- lagsins NK – Nippon Kaiji Kyokai. Gert var nýtt uppkast að skuttogara sem japönsk sendinefnd fór með til Íslands í byrjun nóvember. Í Reykjavík voru þá sam- Flestallir, ef ekki allir japönsku skuttogaranna, hafa verið upp- færðir með árunum með viða- miklum endurbótum og endur- nýjun búnaðar og aðalvélar auk þess að vistarverur hafa verið endurhannaðar og káetur stækk- aðar, enda skipin lengd um allt að tíu metrum sum hver. Er „mublan“ Ljósafell á Fáskrúðsfirði gott dæmi um það. „Ólafur Bekkur dásemdardallur“ Guðni Ólafsson, skipstjóri á Ólafs- firði, var í 45 ár á sjó og var meðal þeirra sem sóttu Ólaf Bekk nýjan til Japan seint í febrúar 1973. Guðni var með hann í ein fimmt- án ár. „Ég get sagt með góðri sam- visku að ég var lítið fyrir að skipta um skipsrúm á mínum ferli, enda þurfti ég þess ekki því ég kunni svo vel við skipin. Ólafur Bekkur var mjög gott sjóskip og fór vel með mann. Maður finnur ekki fyrir óveðrum, það lætur svo vel í sjó,“ segir hann þótt siglingin frá Japan væri hreint ævintýri og ólík öllum öðrum ferðum skipsins síðan þá í Atlantshafinu þar sem verða snarvitlaus veður. „Við lögðum af stað frá Japan ásamt Drangeynni í blíðskaparveðri og hita. Það var svo heitt og lygnt að við urðum að kaupa heitan pott á Hawaii til að kæla okkur í þar til við kæmum út á Atlantshaf. Það var ekki hægt að ganga á dekkinu berfættur, svo heitt var stálið.“ Ævintýri líkast Guðni segir það hafa verið dýr- mætt að fá tækifæri til að sjá alla þá staði sem bar fyrir augu á ferðalaginu til og frá Japan. Á leið út var flogið til New York, þaðan til Fairbanks í Alaska og áfram til Tókýó. „Þaðan tókum við lest til Muroran og ég get sagt þér að það hvarflaði ekki að okkur að við gætum lagt af stað tíu dögum síðar eins og gert var ráð fyrir; svo mikið var eftir að gera til að gera skipið klárt. En það stóð allt saman eins og stafur á bók. Við lögðum úr höfn á tilsettum tíma og biðum eftir Drangeynni sem kom frá Niigata og eftir það fylgdumst við að til Íslands með viðkomu á Hawaii, Bermuda og Panama. Þá tók Atlantshafið við. Við vorum 49 daga á leið heim.“ Í toppstandi Eins og áður segir hefur Ólafur Bekkur reynst afar vel í öll þau fimmtíu ár sem skipið hefur verið í notkun, fiskast hefur vel á það og skipið er enn í toppstandi. Það er sammerkt með öllum Japanstogur- unum enda öll í notkun nema eitt. „Auðvitað er búið að uppfæra skip- ið og gera vel við það í gegnum tíðina,“ segir Guðni. Togarinn var sendur til Póllands snemma árs 1987 í breytingar. Þar var skipt um aðalvél og brú, skipið lengt um 6,6 metra og sett á það perustefni. Að auki voru öll tæki endurnýjuð og nýjum innréttingum komið fyrir. Skipið er í dag gert út frá Siglufirði sem Múlaberg SI-22. » - bv Guðni Ósmann Ólafsson skipstjóri var í hópi þeirra sem sóttu Ólaf Bekk til Japan seint í febrúar 1973. Hann ber skipinu vel söguna og segir það gott sjóskip. Mynd/guðný Ágústsdóttir Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn Við lögðum úr höfn á tilsettum tíma og biðum eftir drangeynni sem kom frá niigata og eftir það fylgdumst við að til íslands með viðkomu á Hawaii, Bermuda og Panama. Þá tók atlantshafið við. Við vorum 49 daga á leið heim. Þessir Japanir gerðu sér fljótlega grein fyrir því að nauðsynlegt væri að leggja til hliðar eigin hugmyndir um skuttogara, sem byggðar voru á „349 tonna norður-Kyrrahafs- togurunum“, „Hokuten 349 tonn“. Íslandstogararnir sem byggðir voru í Japan fyrir 50 árum Sjá skýrsluna í heild á netinu n Japönsku skýrsluna í heild, sem Hisao Hoshino, deildarstjóri tækni- og skipasmíðadeildar Niigata Tekko, tók saman og Egill og eiginkona hans, Yoko A., hafa þýtt á íslensku, er að finna á vef Sjómannadagsráðs: https://sjomannadagurinn.is/sjomannadagsbladid/efni-sjomannadagsbladsins/.

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.