Sjómannadagsblaðið - 2023, Page 18
hann á að öryggismál sjómanna
hafi alltaf verið eitt af höfuðmál-
um sjómannadagsins.
Framfaraskref á Íslandi
„Þó mikið hafi áunnizt, sýna þeir
tíðu sjóskaðar, sem orðið hafa á
fyrstu mánuðum þessa árs, að
ekki má slaka á. Hér verður að
leita orsakanna og taka á málun-
um með festu. Til að svo megi
verða, þurfa allir að taka höndum
saman og þar mega sjómenn ekki
láta sitt eftir liggja,“ skrifar Páll,
en blessunarlega hefur gríðarmik-
ið áunnist í þessum efnum síðustu
ár og alvarleg slys á sjó eru nú fá-
tíð miðað við það sem áður var.
Páll nefnir eitt mesta fram-
faraskref þess tíma, sem var
tilkoma gúmbjörgunarbáta. „Ís-
lendingar munu hafa verið með
þeim allra fyrstu, sem viður-
kenndu gúmbjörgunarbáta til
notkunar á skipum og síðan
fyrirskipuðu notkun þeirra,“
segir hann og hvetur sjómenn um
leið til að huga vel að frágangi
þessara báta og að þannig sé búið
um hnúta að losa megi þá með
einu handtaki. Þá fagnar hann
ábendingum og umræðu um sjálf-
virkan sendibúnað og baujur sem
sendi neyðarkall þegar þær lenda í
sjó eða skip hefur sokkið.
Um leið hvetur hann til þess að
einnig verði gætt að endurbótum
og viðhaldi skipa, því sá þáttur
vegi einna þyngst í að tryggja að
farkostur og áhöfn skili sér heill
til hafnar. Um leið talar hann um
mikilvægi reynslu skipstjórnar-
manna. „Við athugun sjóslysa síð-
ustu 15 árin, er það áberandi, séu
skipstaparnir skoðaðir sérstak-
lega, hvað oft hafa verið við stjórn
reynslulitlir menn, í mörgum til-
fellum hefur skipstjórinn verið á
fyrsta ári í starfi.“
Þeir sem áhuga hafa á að glugga
í fyrri tölublöð Sjómannadags-
blaðsins geta nálgast þau á netinu,
bæði á vef Sjómannadagsráðs og
svo á vefnum Timarit.is.
» - óká
18 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð J ú N Í 2 0 2 3
Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn
ÍSLANDS
SJ
Ó
MANNAFÉLAG
10 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 1 7
þróun segir Gunnar að hafi verið
viðvarandi síðustu 10 til 15 ár.
Breytingar á vinnuaðstæðum
sjómanna síðustu ár segir Gunnar
hins vegar mismunandi eftir skip-
um. Á vinnsluskipum hafi dregið
mjög úr því að menn séu að burð-
ast með pönnur og kassa því nú
séu færibönd, stigabönd og annað
sem færi fiskinn upp í hendurn-
ar á mönnum. „Menn þurfa því
lítið að vera að teygja sig og færa
sig eftir fiski.“ Þá séu komin betri
kerfi varðandi hífingar. „Áður
voru menn bara með bómuna, en
núna eru betri græjur við að hífa
og slaka. Og svo eru náttúrulega
komnar vélar eins og til dæm-
is beitningavélar sem vinna um
leið og línan er lögð. Þannig að
það er alls konar ný tækni komin
í vinnuna um borð sem líka hef-
ur dregið úr slysahættu. Það eru
margir hlutir, smáir og stórir sem
gert hafa hlutina betri.“
Það sem helst teljist til nýbreytni
núna segir Gunnar að útgerðarfyr-
irtækin hafi verið að ráða til sín ör-
yggisstjóra. „Þeir eru með fókusinn
á öryggismál dags daglega og að
hjálpa sjómönnum að halda vöku
sinni þegar kemur að þessum mál-
um, að daglegu eftirliti sé sinnt og
að menn haldi öryggisreglur sem
þeir hafa sett sér. Og þetta er partur
af öryggisstjórnunarkerfi um borð
í hverju skipi. Oft er sagt að skip-
stjórinn sé sá sem beri ábyrgðina,
en öryggisstjórnunarkerfi hjálpar
til við að dreifa ábyrgðinni á alla
um borð. Enginn er undanskilinn
og enginn getur vísað á annan
þegar kemur að öryggismálum.“
Engu að síður eru áhöld um
hvernig til hefur tekist við að
fækka slysum að mati Gunnars.
„Þarna tekst á betri skráning og
svo hins vegar að menn sýna meiri
árvekni og skrá kannski atvik sem
ekki voru skráð áður. Það er ekki
víst að það hafi alltaf farið á skýr-
slu þótt einhver hafi klemmt sig
eða skorið á fingri, en ég held að
í dag fari það á skýrslu. Svo hefur
þetta náttúrlega líka með samn-
ingamál sjómanna að gera, en þeir
hafa mjög ríkan bótarétt og þar af
leiðandi er mjög mikilvægt að allir
sinni skráningu mjög vel.“
Gunnar segir klárt mál að núna
séu sjómenn sinnugri þegar kemur
að öryggismálum og passi betur
hver upp á annan en raunin kunni
að hafa verið áður. „Ef einhver
ætlar sér að ganga of langt þá er
einhver annar sem stoppar hann.
Menn taka þannig ábyrgð hver á
öðrum. Og mér finnst fræðslan og
skólastarfið svolítið hafa opnað
augu manna fyrir þessu. Hérna
áður fyrr var það þannig að menn
voru ekkert mikið að skipta sér
hver af öðrum. En menn eru mikið
opnari með þetta í dag.“
Þessir hlutir gangi líka svolítið í
bylgjum því þegar mikill uppgang-
ur var í fiskveiðum og sjósókn þá
hafi líka verið mikil endurnýjun
og oft mikið af nýliðum um borð.
„Með kvótakerfinu og fækkun skipa
þá minnkar þessi endurnýjun og
meira um að vanir sjómenn séu
um borð. En sá tími er að einhverju
leyti liðinn, en í staðinn erum við
með miklu betra fræðslukerfi fyrir
nýliða og öll skip með kerfi um
hvernig taka skuli á móti nýliðum.“
Þá sé heldur ekki litið svo á að þeir
séu einir nýliðar sem séu að fara
í fyrsta skipti á sjó, heldur sé litið
svo á að maður sé nýliði ef hann er
nýr um borð í viðkomandi skipi.
Dæmi um áhrif nýliðunar á
slys segir Gunnar hægt að lesa
úr tilkynningum um slys á upp-
gangstímanum rétt fyrir hrun, en
þá hafi gengið erfiðlega að manna
skip. Þannig megi sjá slysatíðni
taka stökk árið 2007. „En eftir 2008
eru bara orðnir vanir menn á sjó.
Svo er annað í þessu að smábáta-
útgerð jókst eftir að kvótakerfið var
sett á.“
Þegar horft er á tölurnar núna
allra síðustu ár og um leið með í
huga að slysaskráning sé betri þá
segist Gunnar fullyrða að hlutirnir
færist til betri vegar. „En betur má
ef duga skal og það hlýtur að vera
markmið okkar að fækka þessu
verulega. Við sjáum hver árangur-
inn varð við að fækka banaslysum
og alvarlegum slysum og þá á al-
veg að vera hægt að fækka hinum
slysunum verulega. Þar þarf bara
að koma að þessari nýju hugsun
að allt skipti máli, smátt og stórt.
Undanfarin ár hefur líka verið
vakning í því að skrá það sem kall-
að hefur verið „næstum því slys“,
því þar sem verður næstum því slys
getur orðið alvöru slys síðar. Menn
eru að reyna að fyrirbyggja slysin.
Og þegar fleiri fyrirtæki eru búin að
ráða sér öryggisstjóra þá held ég að
öryggismenningin færist á nýtt og
betra stig.“ -óká
Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á Sjómannadaginn
PORT OF HAFNARFJORDUR
SMÍÐAVERK ehf.
Íslensk smíðaverks snilli
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík
Sími 568 0100 | stolpigamar.is
GÁMALEIGA
GÁMASALA
KÓPAVOGSHAFNIR
FROSTI ehf
44 H r a f n i s t u b r é f
Eggjabúið
Hvammi
Gólf oG
veGGlist
ReyKjAvíK
Slys tilkynnt hjá
almannatryggingum
Ár Slys alls Slys á sjómönnum Hlutfall
1985 1.795 459 25,6%
1986 1.904 503 26,4%
1987 2.177 592 27,2%
1988 2.366 619 26,2%
1989 2.670 631 23,6%
1990 2.874 614 21,4%
1991 3.194 522 16,3%
1992 3.074 511 16,6%
1993 3.303 523 15,8%
1994 2.893 486 16,8%
1995 2.749 459 16,7%
1996 3.010 434 14,4%
1997 3.044 460 15,1%
1998 3.031 378 12,5%
1999 2.991 381 12,7%
2000 3.005 361 12,0%
2001 3.108 344 11,1%
2002 2.401 413 17,2%
2003 2.037 382 18,8%
2004 1.799 309 17,2%
2005 1.782 366 20,5%
2006 1.583 268 16,9%
2007 1.772 425 24,0%
2008 2.160 291 13,5%
2009 1.980 239 12,1%
2010 1.842 279 15,1%
2011 1.934 252 13,0%
2012 2.004 249 12,4%
2013 2.015 230 11,4%
2014 2.157 210 9,7%
2015 2.128 220 10,3%
Heimild: Hagstofa Íslands
„Áður voru menn bara með bómuna,
en núna eru betri græjur við að hífa
og slaka.“
VAGNHÖFÐA 12, REYKJAVÍK | S. 567 2800 | mdvelar@mdvelar.is | mdvelar.is
Í rammaumfjöllun eru þeir sjómenn taldir upp sem látist höfðu af slysförum
frá síðustu útgáfu Sjómannadagsblaðsins.
Jóhann Gunnar Ólafsson, höfundur
greinarinnar um gosið í Heimaey.
Dark Blue
CMYK: 100c + 74m + 10y + 40k
Pantone: 654
RGB: 0r + 43g + 83b
Red
CMYK: 0c + 100m + 100y + 0k
Pantone: 485
RGB: 206r + 23g + 30b