Sjómannadagsblaðið - 2023, Page 26
26 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð J ú N Í 2 0 2 3
B rjóskfiskurinn hámeri, sem
er af hákarlategund og
stundum nefnd bera, var
löngum veidd í miklu magni af
mörgum Evrópuþjóðum og víðar
um heim, en þó ekki hér við land
nema af og til af trillukörlum og
þá fyrir einum sextíu árum síðan
enda var þeim bölvanlega við hana.
Hámerin er sterk og stæðileg og fór
í línurnar til að ræna ákomnum
afla á þær en gat þá auðveldlega
eyðilagt veiðarfærin. Aðallega voru
það trillukarlar á Tálknafirði og
Patreksfirði sem veiddu hámer-
ina „við og við“ þegar róið var til
annarra veiða og að því er virðist
einkum í þeim tilgangi að bæta
upp léleg aflabrögð þann daginn.
Trillukörlum gott búsílag
Þegar veiðarnar voru stundaðar
var það aðallega frá lokum ágúst
til októberloka á veiðislóð undan
Látrabjargi, Blakki og Kópi eftir
því sem fram kemur í fréttum blað-
anna á þeim tíma. „Ekki er þó farið
í róðra til þess eingöngu að veiða
hámeri, heldur er veiddur þorskur
um leið, svo aflahlutur eftir 8–12
tíma róður með 3–4 hámerar í bús-
ílag er allgóður,“ segir í Tímanum 3.
september 1960. Segir enn fremur
að hver hámeri hafi þá lagt sig á um
eitt þúsund krónur, sem samsvarar
til tæplega fjörutíu þúsund króna í
dag, en hámerin er að jafnaði rúmir
tveir metrar að lengd og 140–150 kg.
Veiði á hámeri nú bönnuð
Í dag er hámerin skilgreind
sem ofveidd og veiðar bannað-
ar samkvæmt skuldbindingum
við ákvæði IUCN- og OSPAR-
samkomulaganna. „Hámerin er
auðvitað mikill úrvalsfiskur en því
miður hefur stofninn látið undan
veiði og því hafa allar beinar veið-
ar verið bannaðar í Evrópu og þar
með hér við land,“ segir Guðjón
Már Sigurðsson, sjávarlíffræðing-
ur hjá Hafrannsóknastofnun. Þrátt
fyrir þetta er hámerin fáanleg
á mörkuðum þegar hún kemur
annaðhvort dauð eða sködduð
í veiðarfæri, aðallega togara, og
hleypur þá á snærið hjá mörg-
um úrvalskokkum veitingastaða
landsins, sem taka hámerinni
fagnandi þegar hún býðst.
Steikurnar mikið lostæti
„Steikur hámerar eru mikið lost-
æti og satt að segja eru þær að
mínu mati ekki síðri en steikur
túnfisksins,“ segir Ragnar Eiríks-
son, yfirmatreiðslumaður og einn
eigenda veitingastaðarins Brút við
Pósthússtræti. „Við erum því mjög
vakandi fyrir hámeri og fáum
hana af og til frá Fiskikónginum
og fleiri fisksölum. Við notum
hvert tækifæri sem gefst til að
setja hana á matseðil og vorum
síðast með hana á bóndadaginn
og það kláraðist allt,“ segir Eirík-
ur, sem telur allt of fáa átta sig á
gæðum hráefnisins því henni sé
jafnan hent fyrir borð, dauðri eða
lifandi. „Það er synd. Það er fullt
af hámeri við landið þótt aðallega
sé hún djúpt suður af landinu
og það er eftirspurn á metnaðar-
fullum veitingastöðum. Ég er að
vona að okkur áskotnist hámeri í
síðasta lagi á sjómannadaginn, 4.
júní, enda væri það alveg tilvalið
fyrir sjómenn sem kunna að meta
góðar steikur,“ segir Ragnar.
Eftirspurnin hefur minnkað
Ágúst Tómasson er fisksali í Fisk-
búðinni Trönuhrauni í Hafnarf-
irði, sem rekin hefur verið af sömu
ættinni frá árslokum 1959. Hann
kveðst sammála því sem sagt er
um gæði hámerarinnar. „Þetta er
herramannsmatur en því miður
hefur eftirspurnin minnkað. Fólk
er í dag miklu minna meðvitað um
gæðin en áður var, enda kannski
skiljanlegt því hún er svo örsjald-
an á boðstólum. Við vorum oft að
fá svona tíu stykki á ári en það er
sjaldnar núna,“ segir Ágúst. Hann
segir að hráefnið þurfi að seljast
jafnharðan og það berst vegna þess
að hámerin sé ekki jafngóð eftir
að hún hefur verið fryst. „En þetta
er rosalega gott, kjötið er súrsætt,
ekki ósvipað áferðar og svínasteik-
ur enda verður það hvítleitt við
steikinguna og það er mjög gott að
hafa góða sósu með. Sælkerar sem
eru vakandi fyrir nýjungum ættu
tvímælalaust að hafa augun opin
fyrir hámeri hjá fisksölum og prófa
hana þegar hún gefst á veitinga-
stöðunum,“ segir Ágúst.
»– bv
Segir steikur hámerar ekki
síðri en steikur túnfisksins
Michelin-kokkurinn Ragnar Eiríksson á Brút í Póst-
hússtræti segist af og til fá hámeri á borð til sín. Þó að
veiðar á henni séu bannaðar slæðist hún stundum með
öðrum afla. Þá hleypur á snærið hjá úrvalskokkum.
Hámeri
n Hámeri er að jafnaði um eða yfir tveir metrar að lengd og getur vegið 135 kg eða meira samkvæmt heimildum,
á Vísindavefnum m.a., þar sem Jón Már Halldórsson líffræðingur hefur fjallað um tegundina. Þar segir að hún
lifi í Norður-Atlantshafi, bæði við Evrópu og Ameríku, en einnig í Suður-Atlantshafi, Suður-Kyrrahafi og Suður-
Indlandshafi og við Ísland aðallega djúpt suður af landinu. „Hámerin er uppsjávar- og úthafsfiskur og heldur sig
mest allt frá yfirborði og niður á 300–400 m dýpi, en vitað er að hún getur farið niður á allt að 1.300 m dýpi. Hún
lifir á ýmiss konar litlum og meðalstórum fiskum, bæði uppsjávarfiskum eins og síld og makríl og botnfiskum svo
sem þorski og flatfiskum. Þá étur hámerin líka ýmiss konar höfuðfætlinga (Cephalopoda), aðallega smokkfiska,“
segir Jón Már í umfjöllun sinni.
Ragnar Eiríksson, yfirkokkur á Brút í Pósthússtræti í Reykjavík og meðeigandi að veitingastaðnum, glaðbeittur
með sínu fólki, því svo vel vildi til að hámeri var á boðstólum þegar ljósmyndara bar að garði. Mynd/Hreinn Magnússon
Guðjón Már Sigurðsson, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun, segir hámeri úrvalsfisk, þó svo að á árum áður hafi
sumum sjómönnum þótt hún ódráttur. Mynd/Hreinn Magnússon
Ágúst Ómarsson, fisksali í Fiskbúðinni Trönu-
hrauni í Hafnarfirði, tekur undir allt sem sagt
er um gæði hámerarinnar. Mynd/Hreinn Magnússon
Hámerarsteik tekin á veitingastaðn-
um Brút, en þar var meðal annars
boðið upp á lostætið á bóndadaginn
í febrúar síðastliðnum.
Mynd/Hreinn Magnússon
Uppstoppuð hámeri á náttúruminjasafninu
í Perpignan í Frakklandi. Fiskurinn er ekki
frýnilegur, en sagður bragðgóður.
Mynd/MuséuM d’Histoire naturelle de PerPignan