Sjómannadagsblaðið - 2023, Page 40
40 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3
Birtingarmyndir karlmennskuímyndar sjómanna í árdaga Sjómannadagsblaðsins
reyndust vera tvær. Tómas Helgi Svavarsson rannsakaði fyrsta áratug útgáfunn-
ar í BA-ritgerð sinni í sagnfræði árið 2021. Hann segir hafa komið skemmtilega á
óvart að greina breytingu.
F yrir kemur að BA-ritgerð-
ir og -verkefni snúa að
sjómennsku og útgerð, en
sjaldgæfara er að efni slíkra verk-
efna snúi beint að efni Sjómanna-
dagsblaðsins. Sú er þó raunin um
efni BA-ritgerðar Tómasar Helga
Svavarssonar við sagnfræðideild
Háskóla Íslands, sem hann skilaði
inn í janúar 2021. Titill ritgerðar-
innar er „Djarfir synir fjalls og
fjarðar“, undirtitill „Birtingar-
mynd karlmennsku í Sjómanna-
dagsblaðinu 1938–1948.“
Í niðurstöðukafla ritgerðarinn-
ar kemur fram að megintilgang-
ur hennar hafi verið að kanna þá
karlmennskuímynd sjómanna
sem birtist í Sjómannadagsblað-
inu fyrsta áratuginn í útgáfu
blaðsins. Fram kemur að í blaðinu
hafi verið að finna skýr skilaboð
um hvað hafi þótt æskilegt í fari
sjómanna, en hugmyndirnar hafi
þróast og breyst á tímabilinu, sér
í lagi í kringum seinni heimsstyrj-
öldina.
Dugnaður og fórnfýsi
Tómas Helgi komst að því að
margir eiginleikar hefðu talist
einkar karlmannlegir í gegnum
allan rannsóknartíma ritgerðar-
innar. „Áhersla var lögð á hug-
rekki, dugnað og fórnfýsi alveg
í gegn, hvort sem það var við
störf á sjónum eða í réttindabar-
áttu starfsstéttarinnar,“ segir
í ritgerðinni. Hins vegar hafi
bæst í flóru eiginleikanna sem
taldir voru karlmannlegir. „Í
raun má segja að á seinni hluta
rannsóknartímans, eftir seinni
heimsstyrjöld, hafi verið orðnar til
tvær ímyndir hins karlmannlega
sjómanns,“ segir í niðurstöðum
ritgerðarinnar.
„Annars vegar var það sá sem
mest rými fékk í fyrstu árgöngum
Sjómannadagsblaðsins, þegar
sjómenn börðust fyrir aukinni
virðingu og réttindum og má lýsa
sem hinum hrausta, djarfa og fórn-
fúsa sjómanni sem bjó sig til sjós
í öllum veðrum og undir hvaða
kringumstæðum sem var, án þess
að blikna. Hins vegar var það síð-
an sjómaðurinn, sem lét sig pólit-
ísk málefni varða og var boðberi
menningar hér á landi. Sá beitti
sér fyrir málefnum sjómanna og
var öðrum sjómönnum og þegnum
fyrirmynd. Þessi karlmennskuí-
mynd birtist þó í raun ekki í Sjó-
mannadagsblaðinu fyrr en undir
lok heimsstyrjaldarinnar.“
Þrengdi sjónarhornið
Þegar Tómas Helgi er inntur eftir
því hvað orðið hafi til þess að
hann valdi sér þetta ritgerðarefni
segist hann lengi hafa burðast
með hugmyndir um að gera eitt-
hvað með karlmennsku, en hafa
ekki verið viss um hvaða útgangs-
punkt hann ætti að velja í nálgun
sinni. Hann hafi því leitað ráða hjá
leiðbeinanda sínum við ritgerðar-
smíðin, Erlu Huldu Halldórsdóttur,
prófessor í sagnfræði við Háskóla
Íslands.
„Ég var byrjaður að hallast að
því að fjalla um karlmennsku
meðal sjómanna og hún stakk
upp á því að þrengja sjónarhorn-
ið svo að ritgerðin yrði ekki of
viðamikil,“ segir hann. Erla Hulda
lagði til Sjómannadagsblaðið sem
Tómas gluggaði í og afréð að skoða
breytingar á fyrstu árum útgáf-
unnar „frá upphafi útgáfunnar og
fyrsta áratuginn“.
En af hverju þetta tímabil?
„Þar kemur einna helst til að
mér fannst blaðið taka mestu
breytingunum á þessum áratug.
Og þessi karlmennskuímynd sem
ég var að skoða fannst mér einmitt
breytast á þessum tíu árum og
gaman að hafa það í ritgerðinni.“
Segist landkrabbi sjálfur
Tómas Helgi segist ekki hafa nálg-
ast verkið með neinar fyrirfram-
gefnar hugmyndir um að breyting
yrði. „En ég fór kannski inn í þetta
Breyting varð á
karlmennskuímynd
sjómanna
í raun má segja að á seinni
hluta rannsóknartímans,
eftir seinni heimsstyrjöld,
hafi verið orðnar til
tvær ímyndir hins
karlmannlega sjómanns.
Tómas Helgi Svavarsson er ættaður
að vestan og af sjómönnum kominn.
Hann segir það kannski hafa orðið
til þess að hann valdi karlmennsku-
ímynd sjómanna til umfjöllunar í
BA-ritgerð.
Mynd/Hreinn Magnússon
Skrifin í
Skemmunni
n Áhugasamir um efnið geta
fundið ritgerð Tómasar Helga
Svavarssonar í Skemmunni, raf-
rænu varðveislusafni Háskóla
Íslands, Háskólans á Akureyri,
Háskólans á Bifröst, Háskólans
á Hólum, Háskólans í Reykjavík,
Landbúnaðarháskóla Íslands,
Landsbókasafns Íslands – Há-
skólabókasafns og Listaháskóla
Íslands. Bein slóð á ritgerðina er:
http://hdl.handle.net/1946/37435