Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 2023, Qupperneq 46

Sjómannadagsblaðið - 2023, Qupperneq 46
46 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 2 3 Happdrætti DAS sneri vörn í sókn eftir ágjöf í kjölfar þess að Lottóið hóf göngu sína • Nýafstaðin eru framkvæmdastjóraskipti hjá happdrættinu • Happ- drættið hefur skilað miða- eigendum 30 milljörðum króna að núvirði í vinninga T ímamót urðu hjá Happ- drætti DAS í maí þegar Valgeir Elíasson viðskipta- fræðingur tók formlega við starfi framkvæmdastjóra happdrættis- ins af fráfarandi forstjóra, Sigurði Ágústi Sigurðssyni, sem gegndi starfinu í hartnær 33 ár, frá árinu 1990. Ráðning Sigurðar, sem verið hafði yfirbókari Hrafnistu í tvö ár þegar hann var ráðinn, markaði einnig tímamót og voru mikilvæg. Komið hafði til tals í stjórn Sjó- mannadagsráðs, eiganda þess, að leggja reksturinn niður, svo erfið- ur var hann orðinn eftir að Lottóið hóf innreið sína á markaðinn 1986. Sigurður sneri vörn í sókn, enda kappsmaður mikill og fyrrver- andi handboltakempa, og í dag blómstrar happdrættið sem aldrei fyrr. Segir Sigurður að í raun sé nú staða þess á markaðnum svipuð og forðum daga í kjölfar stofn- unar þess árið 1954, svo mikilla vinsælda njóti happdrættið meðal almennings. Munurinn sé þó sá að nú séu í umferð áttatíu þúsund miðar í eigu landsmanna um allt land og í Færeyjum, en voru að- eins 35 þúsund á fyrstu árunum. Vöxturinn verður ekki aðeins rak- inn til fólksfjölgunar heldur ekki síður til sífelldrar vöruþróunar og nýjunga undir stjórn Sigurð- ar undanfarna áratugi sem leitt hafa til stóraukins áhuga á að eiga ávallt miða í Happdrætti DAS. Sjómannadagsráð sterkur bakhjarl „Staðan var orðin mjög erfið þegar ég kom að verki, búið að segja upp öllu starfsfólki. Ég þurfti eigin- lega að byrja frá grunni og ráða nýjan mannskap, enda er svona rekstur aldrei eins manns verk. En ég var staðráðinn í að snúa vörn í sókn og þegar ég lít til baka hefur stjórn Sjómannadagsráðs staðið við bakið á mér í öllum tillögum sem ég hef borið fram í viðleitni til að viðhalda og auka áhuga miða- eigenda og raunar landsmanna allra á happdrættinu með alls kon- ar nýbreytni á sviði happdrættis- vinninga. Slíkt er ekki sjálfgefið,“ segir Sigurður Ágúst. Spennandi vinningar í boði Og það má segja að ekki hafi skort á hugmyndaauðgi forstjórans, þar sem glæsilegar bifreiðar voru m.a. í aðalvinning í mörg ár, sem vöktu mikla lukku. Slíkt vöru- happdrætti á sér þó fyrirmynd frá upphafsárum happdrættis- ins, þegar hér var enn ríkjandi bændamenning og gjaldeyrishöft og má því segja að ekki hafi kom- ið annað til greina en fjölbreyttir vöruvinningar á borð við dráttar- vélar, báta og jafnvel verðlauna- hesta með öllum reiðtygjum og fleira til að höfða til íbúa í sveit- um landsins. Fyrir höfuðborgar- búana heilluðu fremur glæsilegar íbúðir, í senn einbýli, blokkar- íbúðir og raðhús en til að mynda úthlutaði DAS alls tuttugu og fimm einbýlishúsum á þeim tíma sem vöruhappdrættið var við lýði auk annarra tegunda íbúðarhús- næðis. Blés Sigurður nýju lífi í þá fjölbreytni sem var á fyrstu árun- um auk nýrra leiða til að hreppa vinning í DAS. „Við fluttum inn fjölda glæsi- legra bifreiða sem stórjók söluna hjá okkur; byrjuðum á kaupum á glæsilegum fornbíl frá Bandaríkj- unum Chevrolet Bel Air, í tilefni 50 ára afmælis DAS, sem var auk þess með 700 þúsund krónur í skottinu á tvöfaldan miða og svo komu fleiri bílar í kjölfarið; lúx- usbílar á borð við Mercedes-Benz, Lexus, Hummer, Audi og Mustang sem einnig var með andvirði bíls- ins í skottinu, heilar þrjár milljónir króna á tvöfaldan miða vinnings- hafans. Einnig mætti nefna glæsi- legt mótorhjól af stærri gerðinni, sem einnig var meðal glæsilegra vinninga á þessu tímabili svo nokkuð sé nefnt.“ Mikilvægur bakhjarl Hrafnistu Happdrætti DAS hefur frá upp- hafi verið mikilvægasti bakhjarl Hrafnistuheimilanna við Brúna- veg í Reykjavík og Hraunvang í Hafnarfirði við fjármögnun uppbyggingar og hin síðari ár við viðhald á húsnæði Hrafnistuheim- ilanna tveggja, sem eru að fullu í eigu Sjómannadagsráðs. Að nú- virði hefur Happdrætti DAS skilað eiganda sínum um níu milljörðum króna frá upphafi, þar af fimm frá árinu 1990, sem varið hefur verið til uppbyggingar á Hrafn- istu utan eins milljarðs króna sem happdrættið greiddi á grundvelli lagasetningar Alþingis þess efnis að happdrættið skyldi greiða 40% af hagnaði til Byggingarsjóðs aldr- aðra [nú Framkvæmdasjóður aldr- aðra] á árabilinu frá 1963 til 1987. Árangurinn fyrst og fremst miðaeigendum að þakka Þegar kemur að skilum til miða- eigenda í DAS er er um mun hærri upphæð að ræða, eða alls þrjátíu milljarða króna að núvirði. „Því má ekki gleyma að þennan góða árangur er fyrst og fremst að þakka velvild og hugsjón lands- manna sem kaupa og eiga happ- drættismiða í DAS. Fyrir utan von um góðan vinning, sem nóg er af hjá DAS, enda drögum við viku- lega allt árið um kring, held ég að þátttakan sé ekki síst knúin áfram af ríkri hugsjón og skilningi lands- manna á nauðsyn þess að leggja sitt af mörkum í þágu aldraðra. Annars værum við ekki hér. Þús- undir landsmanna víða um land eiga miða í Happdrætti DAS og það gleðilega er að nú hin síðari ár hefur margt ungt fólk verið að bætast í hópinn,“ segir Sigurður. Útibú DAS í Færeyjum Færeyingar eru líka fjölmennur hópur miðakaupenda og hefur svo verið allt frá árinu 1994. „Okkur þykir afar vænt um stuðning Færeyinga við happdrættið og þar með Hrafnistu. Á móti greið- um við hlutdeild af hagnaði til uppbyggingar á sviði íþrótta- og æskulýðsmála þar í landi en Happdrætti DAS er hið eina hér á landi sem starfar einnig utan landsteinanna og aflar þar með mikilvægs erlends gjaldeyris til þjóðarbúsins.“ Breyttir og enn spennandi tímar Árið 1995 hóf happdrættið sölu á svokölluðum tvöföldum miða, þar sem tilgreindur aðalvinningur tvöfaldaðist að verðmæti þegar vinningurinn kom á númer mið- ans. Fjórum árum síðar var svo ákveðið að fjölga árlegum útdrátt- um í 48 og svo í 52 ári síðar. Hvort tveggja féll í góðan jarðveg meðal landsmanna. Happdrætti DAS er Nýr kafli er að hefjast í sögu Happdrættis DAS Staðan var orðin mjög erf- ið þegar ég kom að verki, búið að segja upp öllu starfsfólki. Ég þurfti eig- inlega að byrja frá grunni og ráða nýjan mannskap, enda er svona rekstur aldrei eins manns verk. — Sigurður Ágúst Sigurðsson Valgeir Elíasson viðskiptafræðingur tók í maí síðastliðnum formlega við starfi framkvæmdastjóra Happdrættis DAS af Sigurði Ágústi Sigurðssyni. Mynd/Hreinn Magnússon

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.