Árbók íþróttamanna - 01.12.1946, Qupperneq 62
Þrístökk án atrennu: Torfi Bryngeirsson, Í.B.V. 8,92 m. (drengjamet).
4x1500 m. boðhlaup: Armannssveitin (Gunnar Gíslason, Stefán Gunn-
arsson, Hörður Hafliðason og Sigurgeir Ársælsson) 17:52,6 mín. (met).
I nokkrum greinum er 7. maður (eða sveit) með jafngott afrek og 6,
maður, eða sem hér segir: 200 m. hlaup: 7. Gunnar Stefánsson, I.B.V. 24,1
sek. Hástökk: 7. Finnbjörn Þorvaldsson, I.R. 1,72 m. 4X100 m. boðhlaup:
7. B-sveit K.R. 47,1 sek. 1000 m. boðhlaup: Drengjasveit Í.R. 2:12,2.
Hafi tveir náð sama árangri, er sá talinn á undan, sem fyrr vann afrekið,
nema hinn hafi náð því tvisvar. Annars hefur það reynzt jafn vandasamt
og áður að semja afrekaskrána, enda illmögulegt fyrir einn mann að fylgj-
ast með árangri og aðstæðum við öll mót, sem haldin eru víðsvegar um
landið. Er því ekki loku fyrir það skotið, að inn í skrána kunni að hafa
slæðzt einhver afrek, sem ekki standast ströngustu skilyrði.
Beri maður saman árin 1944 og 1945 kemur í ljós, að 1945 hefur náðzt
hetri árangur í 19 greinum, en verri í 5 af þeim greinum, sem bæði árin
hafa sameiginleg. Tala þær tölur sínu máli um framfarirnar frá ári til árs.
íslendingar erlendis
Afrek Olafs Guðmundssonar í Svíþjóð
1 Árhók frjálsíþróttamanna 1944 var skýrt allítarlega frá keppni og af-
rekum Olafs Guðmundssonar (K.R.) í Svíþjóð sumarið 1939. Setti hann
það ár 2 ný met í 800 m. hlaupi — 2:00,3 mín. og 2:00,2 mín. — og stóð
síðara metið óhaggað þar til Kjartan Jóhannsson, t.R., hljóp fyrstur Ís-
lendinga undir 2 mín., eða á 1:57,8 mín., árið 1945.
Haustið 1946 kom Ólafur snögga ferð til landsins og aflaði ritstjóri Ár-
bókarinnar sér þá nánari frétta af keppni hans eftir 1939. Kvaðst Ólafur
að vísu hafa keppt nokkuð árin 1940—1942, en gaf lítið út á árangur sinn.
Með því að leita í erlendum blöðum kom þó í ljós, að Ólafur hafði staðið
sig mjög vel á millivegalengdum og tekizt að bæta sín persónulegu met í
400, 800 og 1500. m. hlaupi. Hljóp hann 400 m. á 52,9 sek., 800 m. á 2:00,0
mín. (sem var 2/10 úr sek. undir hans staðfesta íslandsmeti) og 1500 m.
á 4:20,0 mín. Auk þess hljóp hann enn einu sinni á gamla mettímanum í
110 m. grindahlaupi — 17,0 sek. — og stökk 2,92 m. í langstökki án atrennu.
Ólafur hefur nú lagt gaddaskóna á hilluna fyrir fullt og allt, enda orðinn
35 ára. En þeir munu fáir meðal íslenzkra íþróttamanna, sem hafa haldið
sér lengur í fylkingarbrjósti og fullkominni þjálfun en Ólafur Guðmundsson.
60