Árbók íþróttamanna - 01.12.1946, Blaðsíða 69
KNATTSPYRNA
KnattspyrnuáriS 1945
Eftir Einar Björnsson
A knattspyrnuárinu 1945 voru samtals ellefu knattspyrnumót háð hér í
höfuðstaðntim.
Undanfarin ár hefur knattspyrnutímabilið hér hafizt með hinu svonefnda
Túliníusarmóti, kennt við hinn gagnmerka íþróttafrömuð Axel Tuliníus,
fyrsta forseta Í.S.Í., svo var og að þessu sinni.
Tuliníusarmótið hófst 13. maí. Mót þetta er útsláttarkeppni, þannig að
hvert það félag, sem ósigur bíður, er þar með úr leik. Samkvæmt reglugerð
þess hafa aðeins Reykjavíkurfélögin fjögur: K.R., Fram, Víkingur og Valur
heimild til þátttöku. Mótið hófst að þessu sinni með leik milli K.R. og Vík-
ings, sigraði K.R. með 1:0. Næst áttust við Fram og Valur, og lauk þeirri
viðureign eftir langan og harðan atgang með sigri Fram, en fjóra leiki urðu
félögin að heyja og þá flesta með tveim framlengingum áður en Fram sigraði,
en sigur þess varð 2:0 í síðasta leiknum. Þar með voru bæði Valur og Vík-
Ingur ur mótinu, en úrslitin á milli Frarn og K.R., sem lauk einnig með sigri
l'rarn 5:3 eftir tvíframlengdan leik. K.R. hafði tvö mörk yfir þar til 5 mín.
voru eftir af seinni hálfleik, að Fram kvittaði og vann svo á framlengingum.
Uetta er í fyrsta sinn, sem Fram vinnur Tuliníusarmótið. Af þessu stutta
yfirliti er það ljóst, að mót þetta var að þessu sinni mjög spennandi.
Tæpummánuði seinna hófst svo annað aðalknattspyrnumót árisns, Reykja-
vikurmótið. Þar varð Valur sigurvegari, hlaut 5 stig, K.R. 3, en Víkingur og
Tram sín 2 stigin hvort.
Aðalatburður knattspyrnuhreyfingarinnar hér á landi árlega er Knatt-
sPyrnumót Islands, eða íslandsmótið eins og það er venjulega nefnt. Þetta
®iot fór fram að þessu sinni í ágústmánuði, hófst 7. ágúst og tóku aðeins þátt
1 því Reykjavíkurfélögin fjögur. Fóru svo leikar, að Valur bar sigur úr
þýtum með 6 stigum, K.R. hlaut 4 stig, en Víkingur og Fram sitt stigið hvort.
67