Árbók íþróttamanna - 01.12.1946, Blaðsíða 86
eftir, 28. okt. Sigruðu Bretar Akureyringa með 5:1. Lið Ak. var nokkuS
breytt og var vörnin ekki eins heilsteypt. Lið Breta sýndi aftur á móti mun
betri leik en fyrri daginn. — Mánudaginn 29. okt. fór svo 3. og síðasti
leikurinn frarn. Náðu Akureyringar sér nú aftur á strik og sigruðu með
1:0, eftir snarpan og mjög skemmtilegan leik.
Afmœlismót 1 þróttafélagsins Þórs á Akureyri. — Iþróttafélagið Þór á
Akureyri var 30 ára sumarið 1945. í tilefni af því gekkst félagið fyrir
íþróttamóti, sem stóð yfir dagana 6. til 10. júní og var þar m. a. keppt í
knattspyrnu. Þór hafði iátið gera fagran skjöld til að keppa um í meist-
araflokki, II. og III. fl. karla í knattspyrnu. Urslit knattspyrnukeppninn-
ar urðu þessi: Meistaraflokkur K.A. sigraSi Þór meS 3:0, II. fl. Þórs sigr-
aði K.A. með 3:0, III. fl. Þórs sigraði K.A. með 1:0. K.A. vann því skjöld-
inn í þetta sinn.
KNATTSPYRNUMÓT NORÐURLANDS. Norðurlandsmótið, en svo er
Knattspyrnumót Norðurlands oftast nefnt, fór fram að þessu sinni dagana
29. sept. til 6. okt. Þátttaka var meiri en nokkru sinni fyrr, eða fimm fé-
lög. Voru það „Magni“, Höfðahverfi, „Völsungar", Ilúsavík, Knattspyrnu-
félag Siglufjarðar, „Þór“, Akureyri, og Knattspyrnufélag Akureyrar er sá
um mótið. Þar sem aðkomufélögin óskuðu öll eftir því, að hafa sem stytzta
viðdvöl, sakir uppihaldskostnaðar og tímaskorts margra leikmanna, var ekki
um annað að gera en að leika allt mótið á fimm dögum, tvo leiki á dag;
var það samþykkt af öllum aðiljum. Þá var og samþykkt að draga út, hvaða
dag hvert félag skyldi eiga frí. Það fór þannig, að fyrsta daginn átti K.S.
frí, annan „Magni“, þriðja „Þór“, fjórða K.A. og fimmta „Völsungar".
K.S. og Völsungar urðu því þeir óheppnu: að þurfa að leika alla sína fjóra
leiki án hvíldar. Þá þættist við, að veðrið var óhagstætt, því annaðhvort
var sunnan rok eða úrhellis rigning flesta leikdagana, en mótinu varð að
halda áfram þrátt fyrir það. Urslit mótsins urðu þessi: Laugardag, 1: leik-
ur: K.A.—Vöslungar 2:1. Hvass suðvestan. K.A. lék undan vindi og setti
bæði mörk sín í fyrri hálfleik. 2. leikur: Þór—Magni 2:0. Þór lék undan
vindi í fyrri hálfleik og setti eitt mark með aðstoð vindsins. í seinni hálf-
leik lyngdi nokkuð og skoraði Þór þá annað mark. — Sunnud. 3. leikur:
Vöslungar—Þór 3:2. 4. leikur: K.S.—K.A. 1:0. K.S. lék undan vindi fyrri
hálfleik. — Mánudag, 5. leikur: K.S.—Vöslungar 4:2. 6. leikur: Magni—
K.A. 2:1. — Þriðjudag, 7. leikur: Magni—Vöslungar 1:1. Völlurinn rnjög
hlautur. 8. leikur: Þór—K.S. 3:1. — Miðvikudag, 9. leikur: K.S.—Magni
2:0. Mikil rigning, stórar tjarnir á vellinum, sem knötturinn flaut á. Magni
hafði misst sinn aðal markmann. 10. leikur: Þór—K.A. 3:1. Völlur og veð-
84