Úrval - 01.06.1945, Blaðsíða 63
ANDSTÆÐUR í SÁLARLÍFI MANNA
61
verður úr bætt, það er bezt að
tæma þenna eitraða kaleik í
botn.“ Konan verður þannig að
píslarvætti sjálfseyðileggingar-
hvatar sinnar.
Sjálfseyðileggingarhvöt karl-
manna kemur sennilega sjaldn-
ar fram á þann hátt, að kyn-
ferðislífið sé notað að tæki, en
þó alloft. Fróðlegt er að athuga
þá menn, sem fara í hundana
út af ástamálum. Oft má sjá þar
sjálf seyðileggingarhvötunina að
verki. Hefur nokkurt yfirvarp
til að fara í hundana yfirleitt
meiri samúð meðal fólks en
óhamingjusöm ást og vonbrigði
í ástamálum? Þeim, sem orðið
hefur fyrir vonbrigðum í ástum,
fyrirgefst margt. Almennings-
álitið er miskunnsamt við þá.
Fjarri mér sé að gera lítið úr
þjáningum þeim, sem vonbrigði
í ástamálum valda ungum
rnönnum. Það er heilbrigt, að
menn þjáist og sakni, er þeir
missa eitthvað mikilsvert, jafn-
vel þótt minna sé en ástir góðr-
ar stúlku, sem gefa honum fyr-
irheit um ævilanga hamingju.
En hér verður sama upp á ten-
ingnum og áður: Ástarvonbrigð-
in eru oft ekki orsök þess, að
maðurinn fer í hundana, heldur
tilefni til réttlætingar og afsök-
unar þvi að fara í hundana og
sumum undir niðri kærkomið
tilefni til þess. A. m. k. hef ég
þekkt nokkra menn, þar sem ég
tel ótvírætt, að sjálfseyðilegg-
ingarhvötin hafi staðið að baki
ástarsorg þeirra, því að hið
undarlega er, að oft játa þéir,
að sökin sé engu síður þeirra en
stúlkunnar. Iiví lögðu þeir hönd
á verk, sem stefndi til þjáning-
ar og eyðileggingar þeim sjálf-
um?
Það er staðreynd, að margir
menn, einkum karlmenn, eyði-
leggja líf sitt á langvinnri of-
drykkju. Drykkjuskapur er til-
valið athvarf þeirra, sem hafa
ríka sjálfseyðileggingarhvöt.
Hin djúpa orsök þess, að einhver
leggst í stöðuga ofdrykkju er
oft ekki sú, að honum þyki vín
gott á bragðið eða áhrif þess
þægileg, heldur er hún flótti frá
lífinu, dulin, óviðráðanleg löng-
un til sjálfstortímingar og þján-
inga. Ofdrykkjumaður drekkur
ekki sér til upplyftingar og
gleði, til að rjúfa við og við um
stund tilbreytingarleysi hvers-
dagslífsins, hann drekkur sér
til líkamlegrar og andlegrar
þjáningar. Hann eyðileggur
framtíð sína og starf, hann
eyðileggur líf konu sinnar og