Úrval - 01.06.1945, Page 112
110
T7RVAL
lágu skriðdrekar, bílar og bát-
ar á mararbotni. Flestar af
áhöfnunum fórust. Maður gat
séð bifreiðar á hvolfi og hálf-
sokkna pramma hvarvetna. Og
þegar fjaraði út, komu hinar
sexörmuðu járngildrur í ljós,
sem ollu eyðileggingunni.
Á ströndinni úði og grúði af
eyðilögðum farartækjum. Þar
voru skriðdrekar, sem höfðu
orðið fyrir skoti, þegar þeir
voru nýkomnir í land; hálf-
brunnir „jeppar“ og gríðar-
stórir kranar, sem orðið höfðu
fyrirmiklumskemdum. Sprengi-
kúla hafði hitt vagn, sem flutti
skrifstofuáhöld; hann var fullur
af mölbrotnum ritvélum, síma-
áhöldum og skjalatætlum. Sum-
staðar voru stórir innrásarbát-
ar á hvolfi, og ég á bágt með
að skilja hvernig þeir hafa get-
að komist í þær stellingar.
Annarstaðar voru brotnir bát-
ar í stafla, hver ofan á öðrum.
En svo var líka annað og
mannlegra hafurtask að sjá.
Það lá í mjórri. röð eftir fjör-
unni svo mílum skipti. Þetta
var farangur hermanna, sem
aldrei munu þurfa á slíku að
halda framar, því að þeir börð-
ust og féllu til þess að opna okk-
ur leiðina inn í Evrópu.
Þarna lágu heimannatöskur í
röð mílu eftir mílu. Þarna voru
sokkar, skósvertudósir, sauma-
veski, dagbækur, biblíur og
og handsprengjur. Þarna voru
síðustu bréfin að heiman, og
heimilisföngin máð gaumgæfnis-
lega út — en það var varúðar-
ráðstöfun, sem gerð var, áður
en hermennirnir stigu á skips-
fjöl.
Hermenn hafa margt skrítið
í farangri sínum. í hverri inn-
rás er að minnsta kosti einn
hermaður, sem ber banjo um
öxl. Einkennilegasti hiuturinn,
sem ég sá þarna á ströndinni,
var tennisspaði, sem einhver
hermaöur hafði haft meðferðis.
Hann lá þarna í sandinum, með
öllu óskemmdur.
Þegar ég gekk eftir blautri
fjörunni, rakst ég á eitthvað,
sem ég hélt að væru rekaspítur,
er stóðu upp úr sandinum. En
þetta voru ekki rekaspítur; það
voru fætur á hermanni: Hann
var algerlega hulin sandi að
fótunum undanteknum; tæmar
vissu til landsins, sem hann
hafði komið svo langa leið til
að sjá, og sem hann leit svo
stutta stund.
Nokkur hundruð metra fyrir
ofan flæðarmál var hár bakki.