Úrval - 01.06.1945, Page 116
114
tJRVAL.
ina hafðist ég við í hrörlegu,
frönsku bóndabýli langt fram í
víglínunni og svaf á óhreinu
. gólfinu, en raunar var þefurinn
af dauðum kúm svo megn, að
ég gat ekki sofið nema hálfa
nóttina. — Þriðju nóttina svaf
ég í aldingarði einum framar í
víglínunni. Næsta morgun birti
í lofti og árásin hófst. Það var
25. júlí.
Þið skuluð festa ykkur dag-
inn 25. júlí 1944 vel í minni, því
að mér segir svo hugur um, að
sá dagur verði talinn einn af
merkisdögum þessa stríðs.
Þennan dag brutust við út úr
Normandísvæðinu, hættum að
kalla það ,,brúarsporð“ og viss-
um, að stríðið var að flæða yfir
víðáttur Frakklands. Þenna dag
hvarf allur ótti og kvíði um
það, að innrásin gæti misheppn-
ast. Það var ekki framar hægt
að reka okkur í sjóinn. Ör-
Jögin, veðrið og óvinurinn
gátu ekki lengur unnið bug á
okkur; upp frá þessum degi
hlaut styrkur okkar að vaxa, og
Sigurinn var vís.
í fimm daga og fimm nætur
var ég á vígstöðvunum með her-
mönnum okkar. Árásin hófst
um miðjan dag, en ekki um aft-
ureldingu, eins og venjulega er
skýrt frá í bókum. Árásinni
hafði verið frestað dag eftir dag
vegna óheppilegs flugveðurs, og
þenna morgun vissum við ekki
hvað úr henni yrði, fyrr en eft-
ir morgunverð. Þegar kallið
kom, voru hinir ýmsu fyrirlið-
ar í hersveit okkar kvaddir á
fund, til þess að þeir gætu enn
einu sinni kynnt sér árásaráætl-
unina. Þeir fengu nákvæma
uppdrætti af vígstöðvunum, á-
samt öðrum nauðsynlegum upp-
lýsingum.
Liðsforingjar stóðu í hring í
litlum eplagarði bak við hrör-
legt bóndabýli. Höfuðsmaður
hersveitarinnar stóð í miðjum
hringnum og skýrði skipanirn-
ar í smáatriðum. Undirforingj-
ar krotuðu í minnisbækur sínar.
Höfuðsmaðurinn sagði: „Brnie
Pyle verður með hersveitinni í
þessari árás. Hann verður með
einni fylkingunni, svo að þið
munuð sjá hann.“
Liðsforingjarnir litu á mig
og brostu, og ég varð hálf
vandræðalegur.
Svo kom Barton hershöfðingi.
Hann tók sér stöðu í miðjum
hringnum og sagði eitthvað á
þessa leið: „Þetta er einhver
bezta hersveitin í ameríska
hermnn. Hún fór síðast frá