Úrval - 01.06.1950, Side 73
1 STUTTU MÁLI
71
prófa radarbeltið, sem umlykur
landið og gera á viðvart ef
ókunnugt flugtæki kemur inn
yfir landið, eða til að villa fyrir
um radarleit í loftinu líkt og
gert var í styrjöldinni með
alumíníumþynnum eða glugg-
um.
Sú skýring blaðanna, að disk-
arnir séu faratæki með menn
frá öðrum hnöttum er talin
fjarri öllum sennileik.
Ný málning.
Búin hefur verið til ný teg-
und málningar, sem er lyktar-
laus og gerð úr vatni og gervi-
gúmi. Hún lítur út eins og mjólk,
en blanda má í hana litarefnum,
þó að ekki séu í henni terpin-
tína, leysiefni eða olíur, og hún
hlýfir steinsteypu og gipsi bet-
ur en venjuleg olíumálning.
Starfsmenn hjá Dow Chemical
Company í Midland í Michigan
í Bandaríkjunum skýrðu frá
þessu á fundi í félagi amerískra
efnafræðinga nýlega. Spáðu þeir,
að þessi gúmmálning mundi í
framtíðinni verða notuð við inn-
an- og utanhússmálningu.
Gúmið, sem notað er í þessa
málningu er fljótandi butadiene-
styrene, sams konar og notað
er í hjólbarða. Örsmáum gúm-
kúlum — svo smáum, að þær
sjást ekki í smásjá — er þyrlað
saman við vatnið. Þegar máln-
ingin þornar með því að vatnið
gufar upp, tengjast þessar gúm-
kúlur saman og mynda þunna
húð, sem loðir fast við vegginn,
en þolir hinsvegar þvott, þ. e.
leysist ekki upp í vatni aftur,
og þvæst vel af öllum óhrein-
indum. Venjuleg vatnsmálning
(distemper) þolir hinsvegar ekki
þvott, eða þvæst mjög illa.
Gúmmálningu má bera á
steypu- eða gipshúð undir eins
og hún er orðin það þurr, að hún
þolir snertingu. Hún mun verða
seld í dósum eins og venjuleg
málning, og hún er auðveldari
í framleiðslu en ýmsar málning-
artegundir.
~k ★ k
Margar vistarverur.
Það má vera að til sé einn helgidómur í hjarta mannsins þar
sem aðeins ein kona fær að koma inn, en í þvi eru líka mörg
fordyri — og þau eru sjaldan tóm.
— Helen Rowland.