Úrval - 01.06.1950, Side 92
90
ÚRVAL
andi áhrif á gang tíða? Nei,
hann hefur engin áhrif á starf-
semi eggjakerfisins. Er keisara-
skurður nauðsynlegur þegar um
fleirburafæðingar er að ræða?
Að jafnaði ekki. Það er sjaldan
gripið til hans við tvíburafæð-
ingar, en frekar við þrí- eða
fjórburafæðingar. En jafnvel í
þeim tilfellum er konan hvött
til að ganga eins lengi með og
hún getur, og helzt að ala börn
sín eðlilega, ef hún hefur sköpu-
lag og heilsu til þess.
Við konur erum ákaflega lán-
samar .að hægt skuli vera að
grípa til skurðaðgerðar ef þörf
krefur; um það get ég sjálf
borið vitni. En kona sem vill
losna við erfiði og sársauka
eðlilegrar fæðingar með keisara-
skurði, teflir lífi sínu í hættu að
nauðsynjalausu.
• V •
Hinn hvíti galdur.
Amerískur liðsforingi, Williams að nafni, ferðaðist um 1880 í
belgísku Kongo í Afríku og skrifaði eftir heimkomuna skýrslu
um ferð sína. Meðal annars lýsir hann því hvernig kaupmaður
frá Evrópu fer að því að ná hagkvæmum viðskiptum við negra-
höfðingja.
Fyrst, segir Williams, felur kaupmaðurinn í ermi sinni litla
rafhlöðu. Þegar hann tekur í höndina á höfðingjanum fær höfð-
inginn rafstraumshögg, sem er vel til þess fallið að sannfæra
hann um hina miklu krafta hvíta mannsins. Siðan tekur hviti
maðurinn vindil upp úr vasanum og kveikir í honum með venju-
legu stækkunargleri, og lætur þess um leið getið, að vegna þess
hve hann hafi náið samband við sólina, mundi vera hægðar-
leikur fyrir hann að kveikja á sama hátt í svertingjaþorpinu.
Að lokum hleður kaupmaðurinn byssuna sína með púðurskoti.
„Svarta bróður mínum er velkomið að skjóta á mig,“ segir
hann og réttir honum byssuna. „Það er engin hætta, ég er ósær-
anlegur!"
Eftir miklar fortölur fær hann höfðingjann loks til að skjóta.
Skotið ríður af en kaupmaðurinn beygir sig rólegur niður og
tekur kúluna upp úr skónum sínum.
Og nú er hann reiðubúinn að hefja viðskiptin . . .
— Allt.