Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2016, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.02.2016, Blaðsíða 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Þ að eru mikil forréttindi að ná því að verða fimmtíu ára gamall. En það er ekki sjálfgefið og það vitum við öll. Við vitum líka að það eru forrétt- indi að geta hreyft sig og verið við góða heilsu, hvort sem um er að ræða andlega, líkamlega eða félagslega heilsu. Við getum sem einstaklingar hlúð að okkar eigin líkama, hreyft okkur, borðað góðan og holl- an mat og verið í góðum og uppbyggileg- um félagsskap. Allt eru þetta þættir sem hafa áhrif á líf og heilsu okkar, sem sporna við sjúkdómum og hjálpa okkur til að takast á við verkefni dagsins. Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hefur síðustu fimm ár haldið Landsmót 50+ sem er fyrir 50 ára og eldri. Tilgangurinn með Landsmóti 50+ er að efla íþróttir og heil- brigt líf eldri aldursflokka. Á fyrsta Lands- mótinu, sem haldið var sumarið 2011 á Hvammstanga, voru þátttakendur 212 og á Landsmótinu í fyrra á Blönduósi, voru þátttakendur orðnir 378. Keppnisgreinar hafa verið margar og mjög ólíkar. Má hér nefna frjálsar íþróttir, fjallahlaup, bridds, golf, pútt, hestaíþróttir, línudans, skák, starfsíþróttir, sund, ringó og fleira. Setjum okkur markmið Af hverju ætti einhver yfir miðjum aldri að vilja taka þátt í Landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri? Jú, vegna þess að góð heilsa skipt- ir okkur öll miklu máli, ekki síst okkur sem náð hafa 50 ára aldri. Með því að ákveða að taka þátt í Landsmóti 50+ setjum við okkur markmið, við undirbúum okkur fyrir mótið, mætum, tökum þátt, sjáum og kynn- umst nýju bæjarfélagi og nýju fólki. Og er ekki tilvalið að hvetja maka, börn, tengda- börn og aðra ættingja og vini til að koma og taka þátt eða hvetja okkur þátttakendur? Á vefsíðu Landlæknis er að finna ýmsar góðar ábendingar um af hverju hreyfing er fullorðnum einstaklingum svo mikil- væg. Þar kemur meðal annars fram: „Regluleg hreyfing hefur fjölþættan ávinning fyrir heilsuna eins og vísindarann- sóknir staðfesta. Þeir sem hreyfa sig reglu- lega minnka meðal annars líkurnar á að fá kransæðasjúkdóma, heilablóðfall, sykursýki af tegund 2, sumar tegundir krabbameina, stoðkerfisvandamál og geðröskun.“ Grípum tækifærið Það er aldrei of seint að byrja að hreyfa sig. Mælt er með því að fullorðnir einstaklingar hreyfi sig að minnsta kosti 30 mínútur á hverjum degi, þar af taki á því tvisvar í viku. Það viðheldur og bætir þol, vöðvastyrk, lið- leika, jafnvægi og beinheilsu viðkomandi. Þetta getur verið ýmiskonar hreyfing, ganga, hlaup, sund, hjólreiðar, dans, styrktarþjálfun og hvað eina. Hver og einn verður að meta hvað hann ræður við – og hvað veitir mestu ánægjuna. Hollur og góður matur í hæfi- legu magni skiptir líka miklu máli fyrir alla auk þess sem hreyfing fullorðinna hefur góð áhrif á svefn og svefnvenjur. Allt þetta skiptir máli. En það mikilvægasta er að nýta öll tækifæri sem gefast til hreyfingar. Grípum tækifærið og gerum hreyfingu að lífsstíl Sveitarfélög í lið með 50+ Tilvalið væri til dæmis að sveitarfélög landsins bjóði í samvinnu við íþrótta- félögin upp á aukna hreyfingu fyrir þenn- an aldurshóp og þá sérstaklega þá sem hætt hafa störfum. Nýtum íþróttamann- virkin betur og þá þekkingu sem til er í sveitarfélögum landsins til að efla lýð- heilsu þeirra sem eldri eru. Fleiri þurfa að hreyfa sig Um 107 þúsund eða 32% af íbúum lands- ins voru 50 ára og eldri í byrjun árs, sam- kvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Þátttaka 50 ára og eldri í íþróttum hefur aukist til muna síðustu árin. Þetta má sjá af því að fleiri stunda golf, fara út að hlaupa og hjóla. Þetta er jákvæð þróun. En við þurfum að gera betur. Í gegnum tíðina hafa þátt- takendur á Landsmótum 50+ verið nokk- uð hundruð talsins. Miðað við fjölda 50 ára og eldri á Íslandi ættu þeir að vera fleiri. Draumur okkar er að nokkuð þúsund manns taki þátt í Landsmótinu eftir nokk- ur ár. Tökum þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ og bætum heilsu okkar. Kæru félagar, góð heilsa skiptir máli og það er aldrei of seint að byrja að að hreyfa sig á markvissan hátt. Nú skulum við gera það – og fá vini og kunningja til að spretta úr spori með okkur! Helga Jóhannesdóttir, stjórnarmaður UMFÍ Helga Jóhannes- dóttir, UMFÍ. Leiðari Skinfaxa: Á þessu vormisseri hafa þrír háskólanemar komið í vettvangsnám til UMFÍ. Sunna Ottósdóttir og Ólafur Þór Davíðsson, nemendur í Tóm- stunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands, voru dagana 14. mars – 1. apríl. Davíð Svansson, nemandi í Íþróttafræðum við Háskólann í Reykja- vík, var síðan dagana 25. apríl – 13. maí. Á sama tíma stóð hann vaktina í marki Aftureldingar í hörðum slag liðsins um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. Öll stóðu þau sig með stakri prýði og leystu vel úr þeim verkefnum sem lögð voru fyrir þau. Sunna og Óli komu ríkulega að ung- mennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Þau fengu að upplifa það beint í æð hvernig það er að undirbúa og síðan framkvæma jafn stóran viðburð og ráðstefnan er. Davíð kynntist vel undirbúningi að Hreyfiviku UMFÍ og útgáfu Skinfaxa. Að auki kynntust þau öll verkefnum og starfsemi UMFÍ og unnu ýmis verkefni sem fyrir þau voru lögð. Landsfulltrúar UMFÍ þakka þeim öllum fyrir samveruna og samvinnuna. Háskólanemar í vettvangsnámi hjá UMFÍ Sunna og Ólafur Þór. Davíð ásamt Ragnheiði og Sabínu landsfulltrúum UMFÍ.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.