Skinfaxi - 01.02.2016, Blaðsíða 46
46 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Sjáumst í Hveragerði
2017Sjöunda Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hveragerði
dagana 23.–25. júní 2017. Landsmótsnefndin er þegar
komin af stað við undirbúning mótsins. Gísli Páll Pálsson,
framkvæmdastjóri Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði, er formaður Landsmóts-
nefndar. Hann segir mótið verða skemmtilegt eins og alltaf og boðið verði upp á
fjölda líflegra og krefjandi keppnisgreina. Hann bendir á að umhverfið sé fallegt í
Hveragerði og margar
skemmtilegar gönguleiðir
í boði. Mörg gistiheimili
og hótel eru í bænum
auk tjaldstæða fyrir þá
sem þau kjósa.
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannamót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T
Gísli Páll Pálsson, formaður landsmótsnefndar, fór með landsmótsnefndina, Ómar Braga
Stefánsson, framkvæmdastjóra mótsins, og Auði Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra
UMFÍ, um Hveragerði í apríl og sýndi þeim bæinn.
N æsta landsmót er Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið
verður um verslunarmannahelgina. Þetta er bráð-
skemmtileg vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin
er árlega og ætíð um verslunarmannahelgi. Mótin eru haldin
á mismunandi stöðum. Í fyrra var það haldið á Akureyri en
verður nú í Borgarnesi.
Unglingalandsmótið er öllum opið á aldrinum 11–18 ára.
Allir geta tekið þátt, óháð hvort viðkomandi sé í einhverju
íþróttafélagi eða ekki.
Í Borgarnesi er ljómandi góð keppnisaðstaða til staðar fyrir
allar keppnisgreinar og mörg keppnissvæði liggja mjög þétt.
Unglingalandsmót í Borgarnesi
Eins og sjá má var líf og fjör á Unglingalandsmóti UMFÍ á Akureyri
verslunarmannahelgina í fyrra.