Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2016, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.02.2016, Blaðsíða 29
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 29 D agur B. Eggertsson borgarstjóri skipaði starfshóp um heilsueflingu aldraðra haustið 2015. Starfshóp- urinn skilaði af sér skýrslu í byrjun árs 2016. Í skýrslunni kemur fram að útlit sé fyrir að eldri borgurum muni fjölga mikið á næstu árum. Í fyrra hafi fólk 65 ára og eldra verið 13,5% af þjóðinni. Eftir 20 ár, það er árið 2035, verði eldri borgarar orðn- ir 20% þjóðarinnar. Af þeim sökum verði fólk að tryggja heilsu sína á efri árum svo það geti sinnt hlutverkum sínum á vinnu- markaði, innan fjölskyldunnar og vinahóp og lifað bæði fullnægjandi og sjálfstæðu lífi. Fjárfesting sem skilar sér fljótt Starfshópurinn lagði fram 25 tölusettar tillögur sem hann telur að geti bætt lýð- heilsu aldraðra í Reykjavík á næstu árum. Kostnaðarmat fylgir tillögunum. Starfshóp- urinn vísar í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO) um öldrun og heilsu sem gerð var í fyrra. Reykjavík var hluti af umfjöllunarefni skýrslunnar. Starfshópur- inn segir ríki og sveitarfélög geta litið á þann kostnað sem hlýst af heilsueflingu eldri borgara sem fjárfestingu enda geri hún öldruðum kleift að gefa meira og lengur til samfélagsins en ella. Í sumum tilvikum er kostnaður lítill sem enginn enda mælt með nýtingu á rými eða svæði sem annars væri tómt eða lítið notað utan háannatíma. Ætla má að heildarkostn- aður á ári nemi 60–70 milljónum króna að lágmarki. Kostnaðurinn getur breyst tals- vert og fer hann eftir útfærslum á verk- efnum. Of dýrt að fara í sund Á meðal tillagna starfshópsins er lækkun aldurs þeirra sem fá ókeypis í sund niður í 67 ár. Árið 2011 var aldurinn hækkaður upp í 70 ár í Reykjavík. Hann hefur ekki verið hækkaður í öðrum sveitarfélögum. Starfshópurinn telur hins vegar að fleiri Eldri borgarar 20% þjóðarinnar árið 2035 sveitarfélög muni fylgja í kjölfarið og hækka aldurinn. Bent er á að árið 2015 hafi 179 þúsund sundlaugargestir verið 70 ára og eldri. Afturhvarf til 67 ára aldurs er talið geta kostað 15 milljónir króna á ári. Starfshópurinn lagði líka til að gerð verði hreyfikort fyrir öll hverfi borgarinnar. Hug- myndin gengur út á að merkja á ýmsan hátt gönguleiðir sem taldar eru henta eldri borgurum. Lagt er til að kortin verði aðgengileg á vef Reykjavíkurborgar, í þjón- ustumiðstöðvum, sundlaugum og víðar. Aðrar tillögur starfshópsins: • Samstarf við íþróttafélög um nýtingu á aðstöðu til hreyfingar og þátttaka í mótun starfs fyrir eldri borgara. • Hreyfiseðlar á heilsugæslustöðvum. • Hjól til að hjóla með eldri borgurum sem ekki hjóla sjálfir. • Tómstundabíll fyrir eldri borgara. • Líkamsræktarstöðvar bjóði öldruðum ókeypis aðgang og lækkað gjald á lágannatíma. Starfshópur um heilsueflingu eldri borgara vill m.a. fjölga púttvöllum í Reykjavík. Sjálfboða- liðar eldri borgara sjái svo um púttkennslu á nokkrum völlum. „Ég spila mest á harmonikkuna þessa dagana með Harmonikku- félagi Vestfjarða. En við setjum hljómsveitina saman á tímamót- um. Við gerum það fyrir Lands- mótið og göngum á birgðirnar. Við eigum smálager af lögum,“ segir Baldur Geirmundsson léttur í lund. Baldur fagnar 79 ára afmæli á árinu en er feikilega hress. Hljómsveit hans spilar á lokahófi Landsmótsins á Ísafirði. Baldur er betur þekktur sem BG í BG og Ingibjörgu frá Ísafirði. Hann hefur verið einn af forkólfum í íslenskri dægurtónlist um áratugaskeið og kom Ísafirði á tón- listarkortið í kringum 1960. Ingibjörg G. Guðmunds- dóttir er án efa ein af þekktustu söngkonum Vestfjarða. BG og Ingibjörg-hljómsveitin á marga landsþekkta slagara frá því rúmlega 1960 og fram yfir 1970. Þekkt- ast þeirra er vafalítið Þín innsta þrá og Mín æskuást sem Svavar Gestsson gaf út undir merkjum SG Hljóm- platna árið 1970. Þegar landsmenn hlusta á dægurlög frá sjöunda og áratug síðustu aldar hreinlega komast þeir ekki hjá því að heyra eitt til tvö lög og jafnvel fleiri með BG og Ingibjörgu eða öðrum samsetningum á hljómsveitinni. Fjöldi tónlistarmanna hefur spilað með Baldri í gegn- um tíðina. Á Landsmóti UMFÍ 50+ verður með Baldri hljómsveit ásamt söngkonunni Margréti Geirsdóttur, sem hefur oft spilað með bandinu. BG og Margrét stýra stuðinu

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.