Skinfaxi - 01.02.2016, Síða 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 2. tbl. 2016
Ritstjóri: Jón Aðalsteinnn Bergsveinsson
Ábyrgðarmaður: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ
Ljósmyndir: Róbert Daníel Jónsson,
Visit Westfjords, Steinn Ingi Einarsson, Jón
Aðalsteinn Bergsveinsson o.fl.
Jón Eysteinsson tók myndina af körfubolta-
landsliðinu á bls. 13.
Umbrot og hönnun: Indígó
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson formaður, Örn Guðnason
Birgir Örn Sigurðsson, Jón Páll Hreinsson og
Vigdís Diljá Óskarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningar-
fulltrúi og ritstjóri Skinfaxa
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og
framkvæmdastjóri landsmóta
með aðsetur á Sauðárkróki
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi
og verkefnasjóri
Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi og
verkefnastjóri
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Haukur Valtýsson, formaður
Örn Guðnason, varaformaður
Hrönn Jónsdóttir, ritari
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri
Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi
Björn Grétar Baldursson, meðstjórnandi
Varastjórn UMFÍ:
Þorgeir Örn Tryggvason
Kristinn Óskar Grétuson
Sigurður Óskar Jónsson
Guðmundur Sigurbergsson
Forsíðumynd:
Landsmót UMFÍ 50+ fer fram á Ísafirði dagana
10.–12. júní næstkomandi. Stígvélakast er með
vinsælli greinum á mótinu. Síðasta Landsmót
UMFÍ 50+ var haldið á Blönduósi í fyrrasumar.
Þar setti stangarstökkvarinn landsþekkti
Kristján Gissurarson nýtt landsmótsmet en
hann kastaði þar stígvéli 29,55 metra.
Róbert Daníel Jónsson tók forsíðumyndina
sem prýðir Skinfaxa af mögnuðum tilþrifum
eins keppanda á Landsmótinu á Blönduósi.
„Það má líta á okkur sem foreldrana á
hliðarlínunni. Okkur langar til að styðja
við starf UMFÍ með einhverjum hætti,“
segir Björn B. Jónsson, framkvæmdasstjóri
Suðurlandsskóga og formaður UMFÍ árin
2001 til 2007.
Björn átti frumkvæði að því að halda
fundinn ásamt þeim Önnu Möller, Kristjáni
Ingvarssyni og Sæmundi Runólfssyni, fyrr-
verandi framkvæmdastjóra UMFÍ.
Helsta markmiðið með fundinum er að
hitta aðra fyrrverandi stjórnarmenn og
rifja upp skemmtilega tíma í stjórn UMFÍ.
Stefnt er að því að hópurinn hittist tvisvar
á ári í framtíðinni, að vori og hausti. Ákveð-
ið var að miða við þá sem sátu í stjórn
UMFÍ 2005 og fyrr. Björn bendir á að í dag
eru þrír fyrrverandi formenn UMFÍ á lífi
og samtals 43 fyrrverandi stjórnarmenn.
Reynsla þeirra sé verðmæt enda hafi sumir
þeirra setið í stjórn UMFÍ í mörg ár. Ætla
megi að samanlögð reynsla telji nokkuð
hundruð ár.
Hópurinn stefnir á að hittast aftur í haust
og móta frekar hvernig hann geti komið
að starfi UMFÍ og styrkt það. „Það er
skemmtilegt að vera bakhjarl og því viljum
við vera til aðstoðar,“ segir Björn.
Björn B. Jónsson:
Lítum á okkur sem foreldrana á hliðarlínunni
Hluti fyrrverandi stjórnarmanna UMFÍ hittist í þjónustumiðstöð UMFÍ í apríl. Hópurinn skoðar hvernig
hann geti stutt við starf UMFÍ.
Þórir Jónsson formaður (1993–2001) og Þórir Haraldsson (1987–1995).
Ólína Sveinsdóttir (1991–1997), Ásdís Helga Bjarnadóttir (2001–2009),
Sæmundur Runólfsson (1985–1991), Ingi Þór Ágústsson (2003–2005)
og Björn B. Jónsson (1995–2007).
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
er nýr kynningarfulltrúi UMFÍ.
Auk kynningarmála er Jón
ritstjóri Skinfaxa og tengiliður
UMFÍ við fjölmiðla.
Jón Aðalsteinn hefur víð-
tæka menntun og reynslu
þegar kemur að almanna-
tengslum og blaðamennsku.
Netfangið hjá Jóni Aðalsteini
er jon@umfi.is og sími hans er
867 3101.
Nýr kynningarfulltrúi UMFÍ