Skinfaxi - 01.02.2016, Side 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
„Stjórnvöld þurfa að sýna meiri ábyrgð og
beina bæði mataræði og áfengisdrykkju
landsmanna á réttar brautir. En þau gera
það ekki. Þvert á móti er talað fyrir því að
gera mjög áhættusama og kostnaðarsama
tilraun með sölu á áfengi í matvöruverslun-
um. Þetta er stórhættulegt. Áhrif þessarar
tilraunar verður ekki hægt að draga til
baka,“ segir Birgir Jakobsson landlæknir.
Birgir er harðorður í garð stjórnvalda
fyrir tvístíganda í lýðheilsumálum. Jafn
undarlega og það hljómi þá séu stjórn-
völd á Íslandi langt á eftir öðrum þjóðum.
Dæmi um það er stefna stjórnvalda, sem
hann segir enn í mótun. „Ég hef í raun ekki
séð neina heildræna stefnu stjórnvalda. En
embættið hér hefur mjög skýra og góða
stefnu í þessum málum og virkjar sam-
félög, skóla og vinnustaði og leikskóla í
heilsueflandi starfi. Það snýr bæði að hreyf-
ingu, mataræði og líka notkun áfengis og
tóbaks, ásamt öðru. Ég er mjög ánægður
með stefnu Landlæknisembættisins, sem
var mótuð á lýðheilsusviði embættisins
og hafa sveitarfélög sóst eftir því að fá
vottun um heilsueflingu sína,“ segir hann.
Stjórnvöld á rangri
braut
Oft hefur verið talað fyrir því á Alþingi að
leggja beri niður Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins (ÁTVR) og gefa leyfi til að selja
áfengi í verslunum. Þrátt fyrir talsverðan
þrýsting hefur málið þó aldrei náð í gegn.
Eins lögðu stjórnvöld svokallaðan sykur-
skatt á sykraðar vörur vorið 2013. Skattur-
inn átti að stuðla að heilsusamlegra matar-
æði landsmanna. Skatturinn var aflagður
í lok árs 2014.
Birgir landlæknir segir sykurskattinn
hafa verið jákvætt skref sem hefði mátt
standa lengur yfir og þróa betur. Eins sé
núverandi fyrirkomulag á áfengissölu af
hinu góða. Íslendingar séu í því máli til
fyrirmyndar ásamt Svíum og Norðmönn-
um.
Afleikur var að afnema sykurskattinn og
væri sömuleiðis að leyfa sölu á áfengi í mat-
vöruverslunum, að mati Birgis. Þegar að
þessum vöruflokkum komi sé neyslustýr-
ing mikilvæg enda lýðheilsumál.
Sala á áfengi í
matvörubúðum er
stórhættulegt skref
Birgir Jakobsson landlæknir
er með árskort í sund og
hugar vel að líkamlegri og
andlegri heilsu sinni.
Hann segir stjórnvöld ekki
enn hafa mótað heildstæða
stefnu í lýðheilsumálum.
Afnám sykurskatts eru
mistök, að hans mati.
„Stefna stjórnvalda virðist því miður
ganga út á að sleppa tökunum á sykur-
neyslu þjóðarinnar. Svo hafa nokkrir þing-
menn úr stjórn og stjórnarandstöðu talað
fyrir því að auka aðgengi landsmanna að
áfengi. Mér finnst þetta ekki skref í rétta
átt,“ segir hann og leggur áherslu á skað-
semi varanna.
En er það ekki á valdi og ábyrgð hvers og
eins hvað hann eða hún setur ofan í sig?
„Nei, því er ég persónulega og embætt-
ið ósammála. Þetta eru svo alvarleg mál
að stjórnvöld verða að móta skýra stefnu
sem dregur úr áhrifunum af þessum skað-
völdum á lýðheilsu. Þetta eru ekki bara
miklar afleiðingar fyrir einstaklinga heldur
er kostnaður samfélagsins gífurlegur vegna
sjúkdóma af völdum áfengisnotkunar.“
Forvarnir hafa skilað
árangri
Opinberar tölur sýna að dregið hefur úr
áfengisneyslu og er hún nú enn tiltölulega
lítil miðað við nágrannalöndin, að sögn
Birgis. Ljóst sé að forvarnastarf hafi skilað
árangri og mikilvægt sé að halda því áfram,
svo sem með því að gera íþróttir og hreyf-
ingu að lífsstíl. Mikilvægt sé að halda áfram
á sömu braut í stað þess að bæta aðgeng-
ið að skaðvöldum, ekki síst áfengi.
„Það er hætt við að ef sleppa á áfengi
í matvörubúðir aukist áfengisneysla á ný
eins og í öðrum löndum,“ segir Birgir og
bendir á að öll sú forvarnavinna sem lagt
hafi verið út í og skilað góðum árangri
fram til þessa geti farið forgörðum.
„Það er ekki óhugsandi. Það er verið að
gera hér tilraun sem er mjög áhættusöm.
Ef þetta skref verður stigið þá verður aldrei
hægt að snúa til baka. Það eru margar
þjóðir sem öfunda okkur og hinar Norður-
landaþjóðirnar, að Dönum undanskyldum,
af því að hafa aldrei gert þetta,“ segir Birgir.
Viðtal við Birgi Jakobsson landlækni: