Skinfaxi - 01.02.2016, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Boðið var upp á talsverðar nýjung-
ar á metnaðarfullu þingi Ung-
menna- og íþróttasambands
Austurlands (UÍA) á Vopnafirði
í byrjun apríl. Á þinginu var hefðbundnu
nefndastarfi, þar sem atkvæði eru greidd
með handauppréttingum, skipt út fyrir
annað fyrirkomulag, sem kennt er við
heimskaffi (e. World Café).
Fyrirkomulagið var með þeim hætti að
þinggestum var skipt upp í fimm umræðu-
hópa, einn hóp við hvert borð. Hver hópur
fékk sitt afmarkaða umræðuefni. Rætt var
um málefnið í 30 mínútur og þurfti fólk
að skipta um borð eftir það. Á meðal
umræðuefna var samstarfið á landsvísu,
ferðakostnaður, fjármál, þjónusta UMFÍ og
sérsambanda og Unglingalandsmót 2017.
Hildur Bergsdóttir, framkvæmdastjóri UÍA, er mjög ánægð
með hvernig til tókst á sambandsþinginu og vonast til að
aldrei verði aftur farið í handauppréttingaþing eins og tíðk-
ast hafi um áraraðir.
„Við höfum verið að nota þetta fyrirkomulag í smærri hóp-
um. En okkur langaði til að prófa þetta í stærri hópi til að fá
fram fleiri hugmyndir. Á hverju borði voru blöð þar sem fólk
gat skrifað niður þær hugmyndir sem komu út úr hverju
spjalli. Þessum blöðum var síðan safnað saman. Þetta tókst
mjög vel. Ég heyrði einungis jákvæðar raddir. Fólki fannst
þetta skemmtilegt, enda gafst því þarna tækifæri til að ræða
saman. Við borðin var líka fólk úr hinum ýmsu samböndum
sem kannski er að vinna að svipuðum hlutum. Þarna gat
það rætt málin og borið saman bækur sínar. Umræður voru
meiri og líflegri og fleiri virkari en áður.
Kostir og gallar?
„Ég upplifði ekki neina galla. Þetta var skemmtilegt fyrir-
komulag þar sem hefðbundin þing eru ekki fyrir alla. Kost-
irnir voru helst þeir að margar hugmyndir komu fram frá
ólíkum hópum sem annars hefðu ekki heyrst. Það skýrist
af því að sumum finnst óþægilegt að stíga fram í pontu á
hefðbundnum þingfundi og viðra hugmyndir sínar.“
Sambandsþing UÍA:
Aldrei aftur handauppréttingar
Mikil ánægja var
með breytt fyrir-
komulag á sam-
bandsþingi UÍA í
vor. Hildur Bergs-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri ÚÍA,
segir þingið hafa
verið skemmtilegt,
gestir hafi verið
virkari en á fyrri
þingum og hún
horfir fram á nýja
tíma.
Fleiri hugmyndir
komu fram