Skinfaxi - 01.02.2016, Qupperneq 17
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 17
Landsmót UMFÍ
50+ á Ísafirði er
opið öllum
„Við höfum
fengið fyrir-
spurnir um það
frá fólki hvort
það þurfi að
vera í ung-
mennafélagi til
að geta tekið
þátt. En það
þarf ekki. Allir
fimmtugir og eldri geta skellt sér vestur
eða skemmt sér í sínum heimabæ á
Ísafirði á Landsmóti 50+,“ segir Guðný
Stefanía Stefánsdóttir, formaður HSV
á Ísafirði.
Guðný segir undirbúning Lands-
mótsins ganga mjög vel og landsmóts-
nefndin hafi skilað frábæru starfi. Allt
er á áætlun og félagar í Kubbi, íþrótta-
félagi eldri borgara í bænum, búnir að
laga púttvöllinn. Næsta verk er að laga
svæðin almennilega sem keppt verð-
ur á.
„Menn eru ánægðir hvað allt kemur
vel undan vetri hjá okkur,“ bætir hún
við og segist bíða spennt eftir gestum
Landsmótsins. Vel verði tekið á móti
þeim eins og Ísfirðinga er siður.
Landsmótsnefnd
Stefanía Ásmundsdóttir er formaður landsmótsnefndar 6.
Landsmóts UMFÍ 50+ á Ísafirði og Jónas Gunnlaugsson gjald-
keri. Aðrir nefndarmenn eru Anna Lind Ragnarsdóttir, Jóhann
Króknes Torfason, Gísli Halldór Halldórsson, Auður Inga Þor-
steinsdóttir og Flemming Jessen.
Framkvæmdastjóri mótsins er Ómar Bragi Stefánsson og verk-
efnastjóri Birna Jónasdóttir. Keppnisstjóri er Páll Janus Þórðar-
son og umsjónarmaður skráningakerfis er Ingólfur Sigfússon.
Héraðssamband Vest-
firðinga er mótshaldari 6. Landsmóts
UMFÍ 50+ 2016. HSV varð til við sameiningu
Íþróttabandalags Ísafjarðar og Héraðssam-
bands Vestur-Ísfirðinga árið 2000. Virk
aðildarfélög HSV eru sextán talsins og eru
félagsmenn á fjórða þúsund.
Formenn HSV hafa verið fimm frá stofn-
un sambandsins. Guðný Stefanía Stefáns-
dóttir er núverandi formaður HSV. Skrif-
stofa HSV er í Þróunarsetri Vestfjarða.
Framkvæmdastjóri HSV er Sigríður Lára
Gunnlaugsdóttir.
Félög innan HSV
Talsverðar breytingar urðu á Vestfjörðum
í byrjun árs þegar Íþróttafélagið Vestri var
stofnað. Að félaginu standa fimm íþrótta-
félög á norðanverðum Vestfjörðum. Undir-
búningurinn að stofnun Vestra stóð yfir í
tæpt ár. Að stofnun félagsins standa Bolta-
félag Ísafjarðar, Sundfélagið Vestri á Ísafirði,
Blakfélagið Skellur á Ísafirði, Körfuknatt-
leiksfélag Ísafjarðar og knattspyrnudeild
Ungmennafélags Bolungarvíkur.
Hjalti Karlsson, formaður íþróttafélags-
ins Vestra, sagði í síðasta tölublaði Skinfaxa,
þar sem fjallað var um málið, að horft sé til
þess að miklir möguleikar geti falist í sam-
einingu félaganna undir einn hatt, ekki
síst hagræði í kaupum á búnaði, búningum
og fleiru, á borð við ferðakostnað.
Landsmót UMFÍ 50+ á Ísafirði í fyrsta sinn
Næstum því öld leið frá stofnun UMFÍ og þar til Landsmót var í fyrsta sinn
haldið á Vestfjörðum. Það var 6. Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið var
á Ísafirði 1.–3. ágúst 2003. Var það jafnframt fyrsta í fyrsta sinn sem
það mót var haldið um verslunarmannahelgina.
Landsmót UMFÍ 50+ verður nú í fyrsta sinn haldið á Vestfjörðum,
nánar tiltekið á Ísafirði 10.–12. júní 2016.
Guðný Stefanía
Stefánsdóttir, for-
maður HSV.
Aðildarfélög Héraðssam-
bands Vestfjarða (HSV)
SÚÐAVÍK / Ung-
mennafélagið
Geisli
ÍSAFJÖRÐUR / Blakdeild Vestra (áður Blakfélagið Skellur) / Knattspyrnudeild Vestra
(áður Boltafélag Ísafjarðar) / Golfklúbbur Ísafjarðar / Hestamannafélagið Hending /
Körfuknattleiksdeild Vestra (áður KFÍ) / Skíðafélag Ísfirðinga / Skotíþróttafélag Ísafjarðar
/Sundfélagið Vestri / Sæfari / Tennis- og badmintonfélag Ísafjarðar / Kraftlyftingafélagið
Víkingur / Íþróttafélagið Vestri
ÞINGEYRI / Golf-
klúbburinn Gláma /
Hestamannafélagið
Stormur / Íþrótta-
félagið Höfrungur
BOLUNGARVÍK /
Íþróttafélagið Ívar
SUÐUREYRI /
Íþróttafélagið Stefnir
HNÍFSDALUR / Knatt-
spyrnufélagið Hörður
FLATEYRI / Íþrótta-
félagið Grettir