Skinfaxi - 01.02.2016, Page 21
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 21
G ísli hefur gaman af skotfimi og
rifjar upp að líklega hafi hann farið í
fyrsta sinn á rjúpu árið 1991. Hann
fer líka á gæs en hefur nánast
ekkert skotið af boga. Stutt er síðan Gísli
fékk áhuga á bogfimi.
„Ég tók í boga við kynningu á skot-
klúbbi í Kaufering, vinabæ Ísafjarðar í
Þýskalandi, í fyrra. En féll svo alveg fyrir
íþróttinni þegar Skotíþróttafélag Ísafjarð-
Bæjarstjórinn
sem féll fyrir bogfimi
Gísli bæjarstjóri prófaði í fyrsta skipti
að skjóta af boga þegar hann heimsótti
vinabæ Ísafjarðar í Bæjaralandi í fyrra.
Næstum 200 manna skotíþróttafélag
Skotíþróttafélagið á Ísafirði fagnar 30 ára afmæli á næsta ári. Félagsmenn eru um 190 talsins.
Langflestir þeirra stunda skotfimi. Bogfimin er svo ný af nálinni að nú um stundir er verið að
kynna íþróttina um allar sveitir, bæði fyrir börnum og fullorðnum. Forsvarsmenn Skotíþrótta-
félags Ísafjarðar og velunnarar hafa unnið að því um nokkurt skeið að byggja upp framtíðar-
aðstöðu fyrir bogfimi undir áhorfendastúkunni við grasvöllinn á Torfnesi á Ísafirði og bjóða þar
upp á aðstöðu allan ársins hring. Félagið leigir þeim sem vilja skotvopn, bæði byssur og boga til
æfinga og er þar hægt að kaupa skot. Rifil- og haglabyssuvöllur félagsins er á Breiðadalsheiði.
Þar er stórt riffilhús og svokallaður Skeet-völlur og er þar hægt að skjóta leirdúfur.
ar opnaði aðstöðu í bænum í vetur. Þarna
fann ég mína íþrótt enda hefur mér alltaf
fundist gaman að skjóta í mark. Þegar ég
sá að boðið er upp á keppni í bogfimi á
Landsmótinu þá langaði mig til að spreyta
mig,“ segir Gísli. Bæjarstjórinn á ekki sinn
eigin boga, heldur fær hann lánaðan hjá
Skotíþróttafélaginu. Það sama gildir um
fleiri þátttakendur og þá sem æfa með
Skotíþróttafélaginu.
Ætlar ekki að æfa sig
En býst Gísli við harðri samkeppni í bog-
fiminni?
„Ég ætla ekkert að æfa mig fyrir mótið.
Ég ætla auðvitað að gera mitt besta og
hafa gaman af þessu. En þetta getur orðið
erfitt fyrir mig því ég veit að nokkrir eru
komnir vel áleiðis í æfingum og einhverjir
komnir með eigin boga,“ segir bæjarstjóri
Ísafjarðar. Gísli þarf vafalítið að taka á hon-
um stóra sínum og vanda skotin því á
meðal mótherja hans verður Guðmundur
Valdimarsson, formaður Skotíþróttafélags
Ísafjarðar.
Nýgræðingur á
Landsmóti
Þetta er fyrsta skiptið sem Gísli keppir á
Landsmóti UMFÍ 50+. Gíslir telur sig ekki
íþróttamann þótt hann stundi hreyfingu,
þótt ekki sé hún regluleg.
„Ég skokka, hef tekið þátt í Óshlíðar-
hlaupinu og stunda líkamsrækt. Ég hef samt
farið á Landsmót UMFÍ, börnin kepptu á
Unglingalandsmótum í nokkur ár.“
„Ég féll alveg fyrir bogfimi og ætla að keppa í henni,“ segir Gísli Hall-
dór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði. Gísli fagnar fimmtugsafmæli
á árinu. Það dugar honum til þátttöku á Landsmóti UMFÍ 50+.