Skinfaxi - 01.02.2016, Side 33
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 33
- örugg bifreiðaskoðun um allt landSími: 570 9090 · Netfang: frumherji@frumherji.is · www.frumherji.is
góð
þjónustA
og hAgstæð
kjör á
skoðunum
32
skoðunAr-
stöðVAr um
lAnd Allt
ágÚst
sEPt.
okt.
IS OK 890
Bifreiðaskoðanir
Á ökutækjasviði Frumherja hf. er almennum skoðunum sinnt, s.s. aðalskoðunum, endurskoðunum,
breytingaskoðunum, ástandsskoðunum og tjónaskoðunum. Einnig sinnir það skráningarstarfsemi
vegna ökutækja, t.d. móttöku eigendaskiptatilkynninga, og veitir tæknilega þjónustu.
Starfsemin er á öllu landinu og eru starfræktar 32 skoðunarstöðvar í þeim tilgangi.
Frá 2002 hefur Frumherji einnig séð um framkvæmd skriflegra og verklegra ökuprófa á Íslandi.
Ökuprófin eru framkvæmd á 20 stöðum á landinu, sjá lista yfir prófstað á vefsíðu okkar www.frumherji.is
wi-fi, ljúffengt gæðakaffi og litaBækur
fyrir Börnin á meðan þú Bíður.FrÍtt
ekki klikka á skoðun!
örugg bifreið tryggir betri akstur Margir bera þann draum í
brjósti að fara nú að hreyfa sig
en koma sér ekki út fyrir hússins
dyr. Forstjóri Kauphallarinnar
var rétt rúmlega fertugur þegar
hann fór að stunda götuhlaup.
Í fyrra tók hann þátt í um 20
götuhlaupum.
„Ég byrjaði seint að hlaupa og það tók mig
dálítinn tíma að finna hvaða hraði hentar
mér. Nú hleyp ég orðið 4–5 sinnum í
viku en ekkert óskaplega hratt,“ segir Páll
Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.
Hann spilaði fótbolta með Val á sínum
yngri árum en hætti eftir 3. flokk þegar
afreksmenn á borð við Guðna Bergsson
og fleiri voru farnir að sýna hæfileika sína.
Páll fór ekki að stunda reglubundna hreyf-
ingu á ný fyrr en eftir fertugt. Páll hleypur
nú á bretti í líkamsræktarstöð á veturna
en úti á sumrin.
Best að hlaupa hægt
Páll segir það hafi tekið hann svolítinn tíma
að venjast því að hlaupa. Í upphafi hljóp
hann stuttar vegalengdir, 3 km, um 4–5
sinnum í viku en alltof hratt. Þegar hann
hafi rætt við fólk með þekkingu á hlaup-
um, meiðslum og næringu tóku hlaup
hans stakkaskiptum.
„Hröð hlaup voru ávísun á meiðsli. Nú
hef ég hægt á mér og hleyp um 40–50
kílómetra á viku, að mestu á um 10,5–12
km meðalhraða á æfingum en hraðar í
götuhlaupum og keppnum,“ segir Páll og
bendir á að öfugt við hraða spretti styrki
hæg og löng hlaup líkamann til lang-
frama. Páll tekur spretti annað slagið í
æfingahlaupum sínum, allt frá 800–1.200
metra á 16–17 km hraða.
Páll Harðarson:
Kauphallarskokk tvisvar í viku
Páll hefur á þessum átta árum sem liðin
eru tekið þátt í fjölda skipulagðra hlaupa.
Hann mætir alltaf í Reykjavíkurmaraþon,
Víðavangshlaup ÍR og önnur hlaup sem
bjóða upp á 5–10 km vegalengdir. Páll
hefur tvisvar tekið þátt í styttri götuhlaup-
um í Bandaríkjunum. Á síðasta ári tók hann
þátt í 15–20 skipulögðum götuhlaupum.
Árin eru reyndar ærið misjöfn en hann
hefur sem dæmi aðeins tekið þátt í einu
hlaupi á þessu ári.
Skokkhópur
Kauphallarinnar
Hluti af starfsfólki Kauphallarinnar
myndaði skokkhóp í sumar og hefur hann
farið nokkrum sinnum út að skokka í
hádeginu. Af 17 starfsmönnum Kauphall-
arinnar eru sjö í hópnum og fara aldrei
allir í hópnum út að skokka á sama tíma.
„Við hlaupum tvisvar í viku. Förum inn
Laugardalinn og til baka. Þetta er stutt og
þægileg leið, um 5 kílómetrar sem tekur
um hálftíma að skokka. Kosturinn við
svona hádegisskokk er sá að maður verð-
ur úthvíldur á eftir og vinnur miklu betur,“
segir Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar.
Páll Harðarson
segir kostinn við
götuhlaup þann
að einfalt sé að
fara út að hlaupa
og sér líði vel á
eftir.
Keppir við sjálfan sig
„Ég safna ekki verðlaunum heldur
hleyp fyrir sjálfan mig. Viðhorfið skiptir
máli. Það er gaman að taka þátt og
keppa alltaf við sjálfan sig og vinna í
því að bæta eigin tíma. Þar er stöðug
keppni,“ segir Páll.
Viðurkenning Öldrunarráðs Íslands
Á aðalfundi Öldrunarráðs Íslands 29. apríl hlaut Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra (FÁÍA) viðurkenningu ráðsins fyrir einstakt og ósérhlífið
starf í þágu aldraðra. FÁÍA var stofnað fyrir 30 árum og hefur frá upphafi lagt
áhersla á að aldrei sé of seint að hefja reglulega líkamsrækt sem stuðlar að
góðri heilsu og bættum lífsgæðum einstaklinga. Félagið hefur staðið fyrir
fræðslu- og kynningarstarfi víða um land auk þess að leggja sitt af mörkum
til fjölmargra íþróttamóta um land allt, þar sem m.a. er keppt í pútti, boccia
og öðrum vinsælum íþróttagreinum aldraðra. UMFÍ hefur um árabil átt
farsælt samstarf við félagið vegna mótshalds víða um land.
Pétrur Magnússon, formaður Öldrunarráðs Íslands, Þórey S. Guðmundsdóttir,
formaður FÁÍA, og Hjörtur Þórarinsson, varaformaður FÁÍA.