Skinfaxi - 01.02.2016, Qupperneq 35
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 35
Ekki alltaf nauðsyn að æfa inni í íþróttahöllum
Bjó í íþróttahúsinu
Að Laugum var íþróttahús og aðstaðan
miklu betri en í Fnjóskadalnum. Það líkaði
Hauki hinum unga vel og var hann þar í
öllum frítíma sínum frá skóla. „Þetta var frá-
bært enda má segja að ég hafi búið í
íþróttahúsinu á þessum tíma, en heima-
vistin var í risinu, “ segir Haukur og hlær.
Þarna kynntist hann bæði glímu og blaki,
greinum sem hann gerði að sínum og
stundaði í mörg ár.
Haukur fór í Menntaskólann á Akureyri
og lagði þar stund bæði á glímu og blak.
Þegar nær dró tvítugu jókst áhugi hans á
fleiri íþróttum og prófaði hann sig í frjáls-
um íþróttum og knattspyrnu. Á sama tíma
og hann gekk menntaveginn tóku aðrar
íþróttir að lúta lægra haldi fyrir blaki og
fór hann á Akureyri að þjálfa kvennalið
Akureyrar í blaki ásamt því að keppa sjálf-
ur í íþróttinni. Haukur var meðal annars
landsliðsmaður í blaki og á að baki 27 leiki
með liðinu.
Haukur er tannlæknir að mennt og starf-
ar sem slíkur á Akureyri. Tannlækningar
lærði hann í Reykjavík. Í borginni einbeitti
hann sér að háskólanámi en stundaði blak-
æfingar og keppni í hátt í níu ár, en einnig
blakþjálfun með síðari árin eða þar til hann
flutti norður aftur. Þar hélt hann áfram að
þjálfa og keppa í blaki með KA í fjölda ára.
Í framhaldi og með æfingum var hann að
fylgja börnum sínum í íþróttir. Allt þetta
gerði hann þrátt fyrir að vinna fullan vinnu-
dag.
Hægt að æfa úti
Haukur segir UMFÍ mikilvæga kjölfestu í
íþróttastarfi landsmanna, ekki aðeins ung-
menna heldur almennt. Ungmenna- og
íþróttafélög hafi staðið fyrir mikilli upp-
byggingu til íþróttaiðkunar sem hafi skilað
miklum árangri í gegnum tíðina.
„Aðstaðan hefur batnað mikið en það
virðist alltaf vera eftirspurn eftir aðstöðu.
En það er hægt að gera fleira en að byggja
hallir yfir alla íþróttaiðkun,“ segir Haukur
og bendir á kosti þess að huga að hreyf-
ingu í daglegu lífi, velja stiga til að fara á
milli hæða í stað lyftu, hjóla eða ganga
styttri leiðir í stað þess að fara á bílnum,
jafnvel njóta lífsins í náttúrunni. Slíkt bæti
heilsuna. Áhrifin séu ekki síður góð fyrir
andlega en líkamlega heilsu.
„Það er gott að fara út í náttúruna. Það
geri ég, en þyrfti auðvitað að fara miklu
oftar. Bæði hef ég gengið á fjöll og stund-
að stangveiði með góðum félögum. Það
er nefnilega mikilvægt að geta snúið baki
við daglegu amstri, lagt sig á milli þúfna,
lokað augunum og dregið andann. Ég mæli
með því, sérstaklega í Eyjafirði og Þing-
eyjarsýslum,“ segir Haukur að lokum.
Vinnur mikið að félagsmálum
Haukur hefur setið í fjölda nefnda og undirnefnda í tengslum við íþróttir og
íþróttatengd mál í gegnum tíðina. Hér er lítið brot af vinnu hans.
• Formaður Öldunganefndar 30. Öldungamóts Blaksambandsins sem fram fór á
Akureyri 2005. Hann kom einnig að öldungamótum á Akureyri 2001 og 2014.
Yfir eitt þúsund keppendur sækja þessi mót og fleiri nú á síðustu tímum.
• Sat í stjórn Íþróttabandalags Akureyrar 2006–2016, þar af varaformaður í 7 ár.
• Varaformaður landsmótsnefndar 26. Landsmóts UMFÍ á Akureyri 2009. Undir-
búningur mótsins stóð yfir í hátt í 2 ár og mun lengur með allri vinnu við
umsóknir og vinnu með og innan bæjarkerfisins á Akureyri. Keppendur voru
rúmlega 2.000.
• Formaður undirbúningsnefndar Norðurlandamóts unglinga 19 ára og yngri í
frjálsum íþróttum árið 2010. Undirbúningur stóð yfir í 6 mánuði og kepp-
endur voru nálægt 200.
• Fjöldi nefnda og vinnuhópa á vegum ÍBA og Akureyrarbæjar sem tengjast
íþróttum og íþróttastarfi.
• Varaformaður UMFÍ 2011–2015.
• Formaður UMFÍ 2015.
Allir geta hreyft sig
„Ég hef unnið mikið fyrir UMFÍ síðasta árið, stundum er þetta á við hálft starf.
Starf UMFÍ hefur ávallt verið gott og jákvætt enda stuðlar félagið að bættri lýð-
heilsu venjulegs fólks. Það þarf ekki að eiga mörg þúsund króna reiðhjól eða
stunda kraftsport. UMFÍ vinnur að því að gera fólk meðvitað um gildi reglulegrar
hreyfingar, hvort heldur það eru daglegar gönguferðir, einn hringur á golfvellinum
eða önnur hreyfing sem fólk hugsar alla jafna ekki um þar sem hún fellur ekki í
flokk með afreksíþróttum. Markmið UMFÍ er gott og metnaðarfullt og því stefni
ég á að virkja sem flesta með mér hjá UMFÍ og njóta þess að að veita þessum
góða boðskap brautargengi.“
„Ræktun lýðs og lands er göfugt markmið og mikilvægt. Við eigum að nýta
okkur það jákvæða andrúmsloft sem mér finnst ég finna innan hreyfingarinnar til
að fylgja því markmiði eftir.“