Skinfaxi - 01.02.2016, Qupperneq 36
36 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Hreyfing er allra hagur
Það er gaman að hreyfa við fólki. Í Hreyfiviku UMFÍ geta allir þeir
sem vilja standa fyrir viðburði og með einum eða öðrum hætti
hvetja fólk til að hreyfa sig gerst boðberar hreyfingar. Þeir sem
vilja hreyfa við fólki geta skráð sig á vefsíðu UMFÍ. Boðberar
hreyfingar fara í happdrættispott og geta þeir unnið glæsilega
vinninga frá 66°N og Ölgerðinni.
H reyfivika UMFÍ hefst 23. maí og stendur hún til 29. maí. Margir
sjá vafalítið fyrir sér enn eitt átakið þar sem venjulegt fólk stend-
ur eftir í rykinu og horfir á skósóla afreksfólksins þar sem það
rýkur áfram. Hreyfivika UMFÍ snýst ekki um afreksfólk. Hún er
fyrir mig og þig, fólk sem stendur stundum í anddyrinu heima hjá sér og von-
ast til þess hlaupaskórnir reimi sig sjálfir og að keðjan á hjólinu lagi sig sjálf.
Í Hreyfiviku UMFÍ er ekkert eitt rétt eða rangt og því má segja að hver og
einn geti klæðskerasniðið sína Hreyfiviku að vild. Herferðin hefur það að
markmiði að hvetja fólk til að finna sína uppáhaldshreyfingu, að fólk stundi
hana reglulega og hugi að heilsu sinni.
Rannsóknir sýna að fólk er líklegra til að viðhalda ákveðnum lífsstíl ef það
hefur gaman af því sem það tekur sér fyrir hendur. Hreyfing er nefnilega
meira en íþróttir. Öll hreyfing skiptir máli í Hreyfiviku UMFÍ. Ef þú hreyfir
þig af hressilegri ákefð í meira en 30 mínútur að lágmarki á dag þá er mark-
miði Hreyfiviku UMFÍ náð. Hressileg ákefð hreyfir við öllum. Hún hreyfir við
hjartanu svo það endurnýi frumur sínar og lengi líftíma þess.
Finndu uppáhaldshreyfingu þína í Hreyfivikunni
En Hreyfivika UMFÍ stendur fyrir svolítið meira. Í Hreyfivikunni hvetur
UMFÍ fólk til að hlúa að andlegri og félagslegri heilsu sinni. Viðburðir í
Hreyfiviku UMFÍ síðustu árin hafa sýnt og sannað að fjölbreytileikinn er
mikill og fólk um allt land nálgast vikuna eftir sínu höfði.
En hvernig hreyfing?
Jógaslökun á leikskólum þar sem foreldrar eru boðnir til þátttöku er dæmi
um viðburð í Hreyfivikunni, opin fræðsluerindi um mikilvægi hreyfingar á
efri árum, bækur um heilsu í forgrunni á bókasöfnum, fyrirtæki hafa hvatt
starfsmenn til að hreyfa sig í hádegishléi og taka stigana, tilboð á appel-
sínugulum matvörum í verslunum, foreldrar boðnir á sundæfingar með
börnum sínum og finna á eigin skinni hve mikið þau synda og vinaæfing í
knattspyrnunni er brot af þeim viðburðum sem hafa verið síðastliðin ár.
Hreyfivika UMFÍ er fyrir alla!
Fáðu andann yfir þig
Í Þjónustumiðstöð UMFÍ er nú hægt að
nálgast Ungmennafélagsandann í úðaformi.
Tilvalið er að nota andann til að breiða út
gleði og jákvæðni. Ungmennafélagsandinn
inniheldur vatn, gleði og jákvæðni í réttum
hlutföllum. Hann fer vel með húð og bætir
skapið. Ef þú vilt fá Ungmennafélagsanda
yfir þig hafðu þá samband við þjónustu-
miðstöð UMFÍ og óskaðu eftir eintökum.
Við eigum nóg af Ungmennafélagsanda!