Skinfaxi - 01.02.2016, Síða 41
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 41
Þ að er gott að nota aðgengilegt
snjallsímaforrit til að fylgjast með
hreyfingu sinni, árangrinum og
fá þar ráð um það sem hægt er að
gera. Fjöldi slíkra forrita er til. UMFÍ á
í samstarfi við tvö fyrirtæki sem
hafa búið til forrit fyrir þá sem vilja
fylgjast með hreyfingu sinni og fá
hvatningu til að gera betur.
Hvað sem tækninni líður þá
skiptir mestu máli að fólk hreyfi
sig. UMFÍ hvetur þátttakendur í
Hreyfiviku UMFÍ til að finna
sína uppáhaldshreyfingu sína
og stunda hana að minnsta
kosti í 30 mínútur daglega.
Þessi forrit er gott að nota
Sidekick
Íslenska fyrirtækið SidekickHealth hefur
búið til heilsuleikinn Sidekick fyrir snjall-
síma. Þetta er skemmtilegur heilsuleikur
sem hefur reynst áhrifarík leið til að virkja í
margvíslegum heilsuáskorunum þar sem
unnið er að bættri líkamlegri heilsu og and-
legri líðan. Notendur leiksins geta með
einföldum og litríkum hætti unnið að því
að bæta heilsu sína. Leikjaleiðin þykir
kjörin til heilsueflingar ólíkra hópa fólks.
Rannsókn, sem unnin var í samstarfi
við Háskóla Íslands, Landspítala, Harvard-
háskóla og fleiri stofnanir, sýnir að notend-
ur Sidekick stunda meiri líkamsrækt, borða
77% sjaldnar viðbættan sykur og hafa meiri
orku til daglegra athafna. Forritið þykið
það gott að það er notað við rannsóknir á
sykursýki við helsta kennsluspítala lækna-
Wappið
Wappið er íslenskt smáforrit sem Einar
Skúlason hefur unnið að og komst það
langt í frumkvöðlaþættinum Toppstöðin
sem sýnd var á RÚV. Forritið býður upp á
GPS-leiðarlýsingar með leiðsögn og hjálp-
ar það notendum að finna gönguleiðir.
Leiðarlýsingarnar eru fyrir gönguleiðir
víða um land og er þeim sífellt að fjölga.
Leiðarlýsingar eru bæði á ensku og íslen-
sku. Hægt er að nýta leiðarlýsingarnar
með eða án gagnasambands.
Wappið kostar ekkert
í niðurhali en stakar
leiðarlýsingar eru til
sölu fyrir smáupphæð.
Wappið, í samvinnu
við gönguhópinn
Vesen og vergang,
býður upp á daglegar
göngur í Hreyfiviku
UMFÍ. Göngurnar
verða fjölbreyttar, í
Endomondo
Notendur geta fylgst með heilsu
sinni og hreyfingu. Með forritinu
er fólk hvatt til heilbrigðara líf-
ernis. Notendur geta rakið og
greint mismunandi þætti æfinga
með GPS-hnitum, kílómetra-
fjölda, tímalengd og hversu
mörgum hitaeiningum við-
komandi brennir á æfingu.
Hægt er að tengja það púlsmæli.
Forritið getur greint árangur og
komið með ábendingar um
hvernig hægt sé að bæta
frammistöðu og getu. Ef keypt
er áskrift geta notendur deilt
árangri og æfingum með öðrum
og fengið hvatningu og hrós,
sett sér markmið, haldið utan um æfingadagbók, sótt upplýs-
ingar um veður og yfirlit yfir æfingar, árangur og brennslu.
Strava
Svipar til Endomondo.
Til viðbótar geta not-
endur skorað á vini í
hlaupum, borið árang-
urinn sinn saman við
aðra. Ef keyptur er
aðgangur geta not-
endur flokkað topp-
lista eftir aldri, þyngd
og getu. Notandi Strava getur líka séð hvort vinur eða vinkona
er að hreyfa sig, hlaupa eða hjóla. Líkt og með Endomondo er
auðvelt fyrir notendur að deila myndum af árangri og æfing-
um á samfélagsmiðlum með vinum. Hægt er að hlaða Strava
endurgjaldslaust niður af internetinu.
Dæmi um önnur snjallforrit
Nike+ running, RunKepper, Cyclemeter og Fitbit.
deildar Harvard, Massachusetts General
spítalann í Boston.
Tæknitröllin í SidekickHealth bjóða upp
á heilsuáskorun fyrir landsmenn alla í
Hreyfiviku UMFÍ. Áskorunin felur í sér að
íbúar í einu sveitarfélagi geta att kappi við
íbúa í öðru sveitarfélagi. Hægt verður að
skrá alla hreyfingu inn í appið hvort sem
það er tiltekt í garðinum, hjólatúr, sund
eða þrektími. Með Sidekick skiptir máli að
hreyfa sig sem lengst.
Á hverjum degi í Hreyfiviku UMFÍ verð-
ur send út staðan í hinni geysivinsælu
sundkeppni sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar:
http://www.sidekickhealth.com/
Netverslun: Google Play og App Store
(Apple)
mismunandi sveitarfélögum og fyrir alla
áhugasama.
Nánari upplýsingar um stað og stund
hverrar göngu fyrir sig er hægt að finna á
heimasíðu UMFÍ.
Nánari upplýsingar: http://wapp.is/
Fyrir hvaða stýrikerfi: Google Play og App
Store (Apple)
Erlendur Egilsson sálfræðingur er þróunarstjóri SidekickHealth.
Hér má sjá Önnu Bjarnadóttur, formann
Ungmennafélagsins Skipaskaga, og Einar
Skúlason handsala samkomulag um útgáfu
leiðarlýsingar í Wappinu á sjálft Akrafjallið.
Önnur forrit sem eru vinsæl
hjá hlaupurum og hjólafólki